Innlent

Hvalirnir meira virði lifandi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kristján Loftsson ætlar að hefja hvalveiðar á ný.
Kristján Loftsson ætlar að hefja hvalveiðar á ný. Mynd/ GVA.
Hvalir eru mun meira virði lifandi en dauðir, segir stjórn Ferðamálasamtaka Íslands sem mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Kristjáns Loftssonar  að hefja hvalveiðar enn á ný.

Ferðamálasamtökin segja að hvalveiðarnar séu ósjálfbærar og gangi í berhögg við skilgreininguna á sjálfbærri nýtingu auðlinda og séu jafnframt stundaðar í algjörri andstöðu við ályktanir ferðaþjónustunnar. Markaðsátakið Ísland allt árið hafi skilað verulegri fjölgun ferðamanna, þ.á.m. metfjölda í hvalaskoðunarferðir. Tilgangur þessa verkefnis hafi verið að fjölga heilársstörfum og styrkja stoðir atvinnugreinarinnar.  

„Það er því í hæsta máta sérkennilegt að  sérhagmunir eins aðila gangi fyrir almannahagsmunum auk þess sem veiðarnar eru stundaðar í algjörri andstöðu við okkar helstu viðskiptalönd. Fyrir liggur að hvalaskoðun um land allt skilar mun meiri verðmætum til þjóðarbúsins en hvalveiðar munu nokkru sinni gera. Ferðamálasamtök Íslands benda á að eina leiðin til sjálfbærar nýtingar hvalastofnanna hér við land er að sýna þá með ábyrgum hætti erlendum og innlendum ferðamönnum. þ.e. hvalirnir eru mun meira virði lifandi en dauðir,“ segja Ferðamálasamtökin.

 

Þá segja þau að hvalveiðar sem stundaðar séu í óþökk og algjörri andstöðu við okkar helstu viðskiptalönd og viðskiptavini muni ávallt skaða orðspor landsins og hafa neikvæða umfjöllun í för með sér með ófyrirsjánlegum afleiðingum.

Í lok yfirlýsingarinnar er skorað á stjórnvöld að hlutast til um að meiri hagsmunum verði ekki fórnað fyrir sérhagsmuni Kristjáns Loftssonar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×