Handbolti

Hvaða handboltafólk er best í heimi?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mikkel Hansen er á meðal þeirra bestu.
Mikkel Hansen er á meðal þeirra bestu. vísir/getty
Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, hefur birt lista yfir þá leikmenn sem koma til greina í vali á besta handboltafólki heims í ár.

Fimm leikmenn eru tilnefndir í karla- og kvennaflokki. Handboltaáhugamönnum gefst kostur á að taka þátt í valinu en það er hægt að gera hér.

Það kemur ekki mikið á óvart að Noregur eigi tvær konur í kjörinu og Frakkar eiga að sama skapi tvo fulltrúa í kjörinu í ár.

Þessir koma til greina hjá körlunum:

Mikkel Hansen, Danmörk

Nikola Karabatic, Frakkland

Theirry Omeyer, Frakkland

Rafael Capote, Katar

Domagoj Duvnjak, Króatía

Þessar koma til greina hjá konunum:

Christian Neagu, Rúmenía

Heidi Löke, Noregur

Nora Mörk, Noregur

Cornelia Nycke Groot, Holland

Karolina Kudlacz-Gloc, Pólland




Fleiri fréttir

Sjá meira


×