Sport

Hvaða atvinnuíþróttamaður á ekki byssu?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Josh Huff.
Josh Huff. vísir/getty
NFL-leikmaðurinn Josh Huff hjá Philadelphia Eagles var handtekinn um daginn þar sem hann var með óskráða byssu og smáræði af grasi.

Hann sér þó ekkert óeðlilegt við það að ganga um með byssu og ætlar líklega ekki að hætta því.

„Ég er atvinnumaður í íþróttum. Hvaða atvinnuíþróttamaður á ekki byssu?“ spurði Huff mörgum til mikillar furðu.

„Ég er með konu og son heima. Mitt hlutverk er að vernda þau og sjálfan mig.“

Huff efast ekki um að liðsfélagar sínir hjá Eagles eigi líka byssur. Hann segist þó ekki hafa mætt með byssuna inn á æfingasvæði félagsins.

„Nei, nei, nei. Ég er ekki Gilbert Arenas,“ sagði Huff en það var frægt er fyrrum NBA-leikmaðurinn Arenas mætti með byssur í búningsklefa Washington Wizards.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×