Hvað varð um turnana? Ari Tryggvason skrifar 9. desember 2016 07:00 Á fullveldisdaginn, 1. desember síðastliðinn, birtist grein hér í blaðinu eftir Sölva Jónsson; Dagurinn þegar Bandaríkin réðust á sjálf sig. Mig langar til að impra á nokkrum atriðum af því tilefni. Viss tvíhyggja hefur ríkt í viðbrögðum við þennan atburð, 11. september 2001. Annars vegar eru þeir sem taka hina opinberu skýringu góða og gilda, skýringu stjórnvalda, hins vegar þeir sem gera það ekki og telja útilokað að tvíburaturnarnir hafi hrunið vegna brennandi flugvélaeldsneytis. Sá síðari er eins konar regnhlífarsamtök ýmissa hópa sem kalla sig „911-truthmovements“. Málflutningurinn þar hefur einkennst af því að árásirnar hafi verið innanbúðarverk, eins og titill greinar Sölva vísar til. Og í framhaldi af því, að byggingarnar, tvíburaturnarnir ásamt byggingu 7 (47 hæða), hafi verið eyðilagðar með skipulegum hætti, sprengiaðgerðum. Nú nefni ég til sögunnar, þriðja kostinn, sem reyndar hefur orðið fyrir miklu aðkasti frá báðum hinum fylkingunum. Þetta er kona að nafni Judy Wood. Menntun hennar gerir hana einstaklega hæfa til að rannsaka þennan atburð. Hún er byggingarverkfræðingur, véltæknifræðingur ásamt því að vera doktor í efnaverkfræði með sérhæfingu á samruna ólíkra efna. Judy Wood hóf að rannsaka þennan atburð frá fyrsta degi, afraksturinn birtist 2008 með bók hennar Where did the Towers go? Evidence of direct free-ener technology on 9/11. Þar sýnir hún fram á, að hvorki brennandi flugvélaeldsneyti, né sprengiefni af nokkru tagi, geti útskýrt hvað gerðist. Þó engar sannanir hafi fundist, hvorki um aðkomu flugvéla né sprengiefna, í „hruni“ bygginganna, er ekki þar með sagt að slík fyrirbæri hafi ekki komið við sögu. Að eyðileggja byggingu með sprengiaðgerðum er flókið verk og getur auðveldlega farið úrskeiðis. Að koma 110 hæða tvíburaturnum fullkomlega lóðrétt niður í grunnflöt sinn með sprengjum, er útilokað. Í öðru lagi væri mjög erfitt ef ekki ómögulegt, að samhæfa slíkar aðgerðir með fjarstýringu. Að auki væri undirbúningurinn svo viðamikill og tímafrekur, að slíkt færi varla framhjá nokkrum manni. Ekkert af þessu stemmir við það sem gerðist. Byggingarnar hrundu ekki, þær urðu að dufti. Hvor tvíburaturn vó u.þ.b. 500 þúsund tonn. Báðir turnarnir, ásamt WTC-7 vógu vel yfir milljón tonn. Ef allt þetta hlass hefði fallið óhindrað til jarðar, hefði það valdið því að undirlagið, sem líkja má við baðkar, hefði brostið og Hudsonáin flætt inn á Manhattan. Ekkert slíkt gerðist, meira að segja varð neðanjarðarkerfið undir byggingunum nánast óskemmt. „Hrunið“ mældist mjög lítið á jarðskjálftamælum. Fleiri byggingar eyðilögðust eða skemmdust verulega í WTC-samstæðunni, WTC-3 (22 hæða) og WTC-4 (9 hæða), eyðilögðust að mestu. WTC-5 (9 hæða) og WTC-6 (8 hæða) skemmdust verulega. Að lokum vitna ég í bók Judy Wood á bls. 171, þar sem Jay Jonas brunaliði, lýsir upplifun sinni. Hann komst af ásamt þrettán öðrum félögum sínum: „Ég skimaði um allt í kringum mig og sagði, strákar! Það voru víst 106 hæðir fyrir ofan okkur og nú sé ég sólarljósið .... Ekkert er fyrir ofan okkur. Þetta háhýsi er ekki lengur til. Þetta voru stærstu skrifstofubyggingar veraldar og ég sé ekki eitt einasta skrifborð eða skrifstofustól eða þá síma, ekki neitt.“ Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Er þetta í alvöru verðlaunaefni? Snorri Másson Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson Skoðun Biskup í tengslum Guðrún Karls Helgudóttir Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Áhugaverðir tímar kalla á áhugaverðan forseta Cody Alexander Skahan Skoðun Það vantar vanan og áreiðanlegan mann í verkið Haraldur Ólafsson Skoðun Himinhátt innanlandsflug Ingibjörg Isaksen Skoðun Árangur gegn verðbólgu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Árangur gegn verðbólgu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar er híbýlaauður? Anna María Bogadóttir skrifar Skoðun Áhugaverðir tímar kalla á áhugaverðan forseta Cody Alexander Skahan skrifar Skoðun Biskup í tengslum Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar Skoðun Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Uppskera að vori Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Er menning stórmál? Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir skrifar Skoðun Það vantar vanan og áreiðanlegan mann í verkið Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Leikskólamál eru forgangsmál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Himinhátt innanlandsflug Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Hefur allt sem þarf Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju að gera rekstraráætlun? Karl Sólnes Jónsson skrifar Skoðun Norskur skammtímagróði Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Æpandi vanþekking Hjálmar Jónsson skrifar Skoðun Mannréttindi sama hvað Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Helga Þórisdóttir og fjöregg íslenskrar þjóðar Páll Torfi Önundarson skrifar Skoðun Er þetta í alvöru verðlaunaefni? Snorri Másson skrifar Skoðun Ótímabundin ráðgjöf til ríkisstjórnar Snæbjörn Brynjarsson skrifar Skoðun Lykillinn að orkuskiptunum er úr áli Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason skrifar Skoðun „Vitum ekkert hvað við erum að gera“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Nýtt örorkukerfi – verra þeirra réttlæti Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að koma Íslandi aftur á rétta braut? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við koma Íslandi aftur á rétta braut? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Bergmál frá geymslustað líkamans Matthildur Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun
Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar
Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar
Skoðun Valdarán í Kirkju sjöunda dags aðventista og tengslin við fyrirhugaðar framkvæmdir í Ölfusi Jón Hjörleifur Stefánsson,Ómar Torfason skrifar
Skoðun Dánaraðstoð: Rangfærslur varðandi skrif Læknafélags Íslands Ingrid Kuhlman,Bjarni Jónsson,Sylviane Lecoulte,Steinar Harðarson,Veturliði Þór Stefánsson,Íris Davíðsdóttir skrifar
Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir Skoðun