Viðskipti innlent

Hvað þýðir fjárlagafrumvarpið fyrir þig?

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Smellið á myndina til að sjá hana stærri.
Smellið á myndina til að sjá hana stærri. Vísir/Grafík
Fréttablaðið rýndi í hvað ákvæði fjárlagafrumvarpsins, sem fjármálaráðherra lagði fram í gær, þýða fyrir afkomu einstaklinga og fjölskyldna.

Skattalækkanir og hækkun bóta eykur ráðstöfunartekjur, en á móti hækka ýmis gjöld og millifærslum og niðurgreiðslum er hætt, sem þýðir að fólk hefur úr minna fé að spila.

Hækkun barnabóta

Fjárhæðir barnabóta hækka um 13% auk 2,5% verðlagsuppfærslu og er beint frekar að tekjulægri foreldrum með eins prósentustigs hækkun á skerðingarhlutföllum.

Útvarpsgjald lækkað

Gjaldið fer úr 19.400 krónum í 17.800 krónur, og lækkar svo enn frekar í janúar 2016 þegar það verður 16.400 krónur.

Elli- og örorkulífeyrir

Dregið verður úr skerðingum bóta sem þýðir hækkun á útgjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega.

Vörugjöld felld niður

Almennt vörugjald verður afnumið þann 1. janúar 2015. Það verður til að lækka verð á sykruðum matvælum, drykkjarvörum, byggingavörum, varahlutum í bíla, stærri heimilistækjum og öðrum raftækjum.

Lækkun virðisaukaskatts

Efra þrep virðisaukaskatts lækkar úr 25,5% í 24%. Undir efra þrepið falla allar vörur og þjónusta sem ekki er í neðra þrepi.

Dæmi um væntanlega verðlækkun:

Bíómiði: 1.100 kr. yrði 1.087 kr.

Ajax triple action 750 ml.:   488 kr. yrði 482 kr.

Klipping kvenna: 6.500 kr. yrði 6.422 kr.

Líkamsræktarkort mánaðargjald:   6.840 kr. yrði 6.758 kr.

Atvinnuleysistímabil stytt

Það tímabil sem heimilt er að greiða atvinnulausum atvinnuleysisbætur verður stytt um hálft ár; úr 36 mánuðum í 30 mánuði.

Sóknargjöld hækkuð

Sóknargjöld til Þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga verða hækkuð í 810 kr. á mánuði en voru áður 750 kr.

Allir vinna

Átakið allir vinna verður ekki framlengt. Um áramót falla því niður endurgreiðslur á virðisaukaskatti vegna vinnu við húsnæði.

Framkvæmdasjóður aldraðra

Lagðar eru til breytingar á lögunum þannig að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra hækki um 2,5% úr 9.911 kr. í 10.159 kr. á ári.

Tóbak og áfengi

Sértæk vörugjöld eru ekki felld niður líkt og þau almennu. Þau eru lögð á vörur með neikvæð ytri áhrif,  það er ökutæki, bensín, dísilolíu, áfengi og tóbak. Þessi gjöld munu hækka um 2,5% í byrjun árs 2015 í samræmi við hækkun verðlags.

Matarskattur hækkar

Lægra þrep virðisaukaskatts verður hækkað úr 7% í 12%. Samkvæmt greiningu sem var unnin fyrir fjármálaráðuneytið þýðir þetta að matarkostnaður fjögurra manna fjölskyldu, þar sem annað barnið er yngra en sjö ára, hækkar um 3.520 krónur. Það þýðir 42.240 króna hækkun á ári í matarkostnað.

Dæmi um væntanlega verðhækkun:

Súrmjólk 1 lítri: 191 kr. yrði 200 kr.

Kellog’s kornflögur: kílóverð 798 kr. yrði 835 kr.

Ali-skinka silkiskorin: kílóverð 2.766 kr. yrði 2.895 kr.

Sætar kartöflur: kílóverð 398 kr. yrði 417 kr.

Gevalia kaffi: 500 gr. 659 kr. yrði 690 kr.

Barna kuldagalli: 9.999 kr. yrði 9.880 kr.


Tengdar fréttir

Lítil hækkun barnabóta

"Það sem mér finnst vera sárgrætilegt þegar þetta svigrúm myndast þegar hagur ríkisins vænkast er að það sé allt saman nýtt í þágu þeirra sem standa mjög vel fyrir,“

Framlag til Háskóla Íslands hækkar

Alls nemur framlag til Háskóla Íslands 12.962,3 milljónir króna árið 2015, samanborið við 12.451,3 milljónir árið 2014.

Barnabætur hækka um 13%

Tekjutenging er á móti aukin þar sem skerðingarhlutföll hækka um eitt prósentustig.

Landspítali þarf meira fé

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, fagnar því að staðið sé við tækjakaupaáætlun spítalans. Spítalinn sé þó enn að fá um 10% minna fé en hann gerði 2008.

Matarskattur mun hækka um fimm prósentustig á næsta ári

Neðra þrep virðisaukaskatts hækkar úr sjö prósentum í tólf prósent á næsta ári, samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi sem dreift var á Alþingi í gær. Efra þrep mun lækka úr 25,5 prósentum í 24 prósent. Áætlað er að barnabætur hækki en skerðingarhlutfall aukist

Framlög til Þjóðkirkjunnar hækkuð

Framlög til Þjóðkirkjunnar hækka um rúmar 33 milljónir króna frá fjárlögum þessa árs og nema tæpum 1.508 milljónum króna á fjárlögum ársins 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×