Sport

Hvað tekur nú við hjá Conor?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor McGregor.
Conor McGregor. Vísir/Getty
Írinn Conor McGregor kom heiminum á óvart á þriðjudagskvöldið þegar hann lýsti því yfir á Twitter að hann væri hættur í MMA. Flestir héldu að um grín væri að ræða en fljótlega kom þó í ljós að það var mikil alvara að baki þessum orðum.

Fjórum tímar síðar kom Dana White, forseti UFC, í sjónvarpið og lýsti því yfir að UFC hefði ákveðið að draga Írann úr keppni í UFC 200. Ekki að hann yrði ekki með þar sem hann væri hættur.

Sjá einnig: Conor fær ekki að keppa á UFC 200

Ástæðan sem UFC gaf var sú að Conor væri ekki á leiðinni til Las Vegas til þess að sinna skyldum sínum í vinnu á kynningarefni fyrir bardagakvöldið. Hann væri frekar á Íslandi að æfa. Þessi útskýring þykir ansi þunn og flestum ljóst að málið ristir dýpra en það.

Flestir telja að McGregor og UFC séu í deilu vegna peninga. Hann er helsti gullkálfur sambandsins og færir UFC gríðarlegar tekjur. Hann vill væntanlega fá stærri hlut af kökunni en fékk ekki sitt fram, aldrei þessu vant, hjá UFC sem hefur hingað til látið allt eftir honum. UFC er aftur á móti þekkt fyrir að halda ansi fast um budduna.

Svo hafa menn velt því upp að dauðsfallið á Írlandi fyrir rúmri viku hafi haft svo djúpstæð áhrif á Írann að hann hafi ákveðið að hætta. Í það minnsta tímabundið. Conor sat á fremsta bekk er Joao Carvalho tapaði fyrir liðsfélaga McGregors, Charlie Ward. Carvalho lést tæpum tveimur dögum síðar af höfuðmeiðslum.

Sjá einnig: Segir dauðsfallið hafa mikil áhrif á ákvörðunina

Það eina sem er ljóst er að Conor McGregor er hættur í MMA. Í það minnsta tímabundið. Tíminn verður að leiða í ljós hvort hann nái sáttum við UFC sem tapar miklu á því að hafa hann á hlíðarlínunni.

Þó svo Írinn segist vera hættur að keppa er hann ekki hættur að æfa. Hann kom til Íslands í upphafi vikunnar til þess að æfa með Gunnari Nelson en okkar maður berst í Rotterdam þann 8. maí næstkomandi.

MMA

Tengdar fréttir

Conor fær ekki að keppa á UFC 200

Hlutirnir gerðust hratt hjá Conor McGregor í gærkvöldi. Nokkrum tímum eftir að hann tilkynnti á Twitter að hann væri hættur sagði Dana White, forseti UFC, að hann myndi ekki keppa á UFC 200.

Heimspressan fjallar um McGregor

Hvort sem Conor McGregor stendur við Twitter-færslu sína er ljóst að hún hefur vakið gríðarlega athygli.

Conor segist vera hættur

Conor McGregor staddur á Íslandi og tilkynnti þetta á Twitter-síðu sinni í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×