Hvað næst?

Fréttablaðið Fastir pennar 22. febrúar 2012 06:00
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:
Flestir eru sammála um að tímabært sé að þjóðin eignist nýja og frumsamda stjórnarskrá. Sú sem staðið hefur lítið breytt frá stofnun lýðveldisins er, auk þess að vera gömul, aðlöguð útgáfa af þeirri stjórnarskrá sem gilti í Danmörku um miðjan fimmta áratug síðustu aldar.

Það er kunnara en frá þurfi að segja að þrátt fyrir ágætan vilja um nokkurra áratuga skeið þá hefur ekki tekist að ná samstöðu um nýja stjórnarskrá eða verulegar breytingar á þeirri sem fyrir er.
Stjórnlagaþing, sem eftir ákvörðun Hæstaréttar um ógildingu kosninga var breytt í stjórnlagaráð, var því góð hugmynd: að fá breiðan hóp af fólki til að koma að hreinu borði til að smíða frumvarp að nýrri stjórnarskrá. Vinna stjórnlagaráðs var einnig til fyrirmyndar. Þar vann fólk vel og af heilum hug að því að ná sameiginlegri niðurstöðu.

Jafnljóst er að slíkt grundvallarplagg sem stjórnarskrá er verður aldrei fullsamið á fáeinum mánuðum og er þá í engu verið að varpa rýrð á þá vinnu sem unnin var í stjórnlagaráði. Engu að síður stóðu væntingar ýmissa, ekki síst stjórnlagaráðsfulltrúa sjálfra, til þess að litið yrði á lokaafurð stjórnlagaþingsins, stjórnlagafrumvarpið sem fullfrágengna stjórnarskrá tilbúna til þess að leggja fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ábyrgðin á verkefninu er þó alltaf hjá Alþingi. Þess vegna er spurning hvort ekki sé verið að snúa hlutverkum á hvolf með því að kalla saman stjórnlagaráð að nýju til að leggja blessun sína á meðferð Alþingis á frumvarpi ráðsins.

Það liggur fyrir samkvæmt núgildandi stjórnarskrá að það er verkefni Alþingis að samþykkja nýja. Þingið valdi að fela 25 manna hópi að semja frumvarp til stjórnskipunarlaga en láðist að negla niður og skrá á nægjanlega nákvæman og skýran hátt þann farveg sem svo tæki við.

Skortur á skýrleika um hlutverk stjórnlagaráðs hefur verið vatn á myllu þeirra sem frá upphafi voru andsnúnir hugmyndinni um að óbundinn hópur utan þings kæmi að því að leggja grundvöllinn að nýrri stjórnarskrá. Umræða um vinnsluferil fyrirhugaðrar stjórnarskrár kemur inntaki hennar hins vegar að litlu gagni. Fyrir stjórnarskrá sem á að geta staðið í áratugi væri mun gagnlegra að umræðan snerist um innihald tillagna stjórnlagaráðs.

Það er vissulega brýnt að þjóðin fái nýja stjórnarskrá sem heldur og getur helst staðið í gegnum meirihluta 21. aldarinnar. Það er einnig og ekki síður afar brýnt að um þá stjórnarskrá ríki góð sátt.

Til að svo geti orðið þá verður þetta grundvallarplagg stjórnskipunarinnar að vera vel ígrundað og vel skrifað. Stjórnlagaráð hefur lagt þar fram veigamikla grundvallarvinnu. Þeirri vinnu verður að halda áfram á uppbyggilegum nótum.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Hvað næst?