Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?

Fréttablaðið Aðsendar greinar 09. febrúar 2012 06:00
Jórunn Rothenborg
fulltrúi hjá Vinnumálastofnun
Jórunn Rothenborg fulltrúi hjá Vinnumálastofnun
Jórunn Rothenborg skrifar:
Ég var agndofa í lok vinnudags í byrjun árs.

Ég á ættir að rekja bæði til Íslands og Danmerkur, flutti hingað frá Danmörku fyrir nákvæmlega 23 árum, full eldmóðs, glöð, ung, með góðan mann mér við hlið og fallegt lítið barn okkar. Mér fannst spennandi að flytja til heimalands mannsins míns – og móður, sem sjálf hafði flutt til ókunnugs lands 30 árum áður.

Árin liðu og ég og mín fjölskylda komum okkur vel fyrir, við bættist annað fallegt barn og undum við hag okkar vel hér á Íslandi. Við tókum þátt í þessari venjulegu íslensku lífsbaráttu við að koma okkur upp heimili og hlúa sem best að fjölskyldunni ásamt því að byggja upp lítið, en öflugt einkarekið fyrirtæki.

Eins og öllum er kunnugt fór eitthvað mikið úrskeiðis hér á Íslandi. Hjólin fóru að snúast allt of hratt. Við, hinir venjulegu borgarar, köstuðumst út í fjárhagshvirfilbyl sem færði allt upp, upp, upp til þess eins að falla að lokum til jarðar með svo miklu brauki og bramli við hrun efnahags landsins haustið 2008 að við vissum ekki hvað sneri upp og hvað niður. Síðan eru liðin rúm þrjú ár. Landinn er enn að reyna að átta sig og sætta sig við orðinn hlut, margir sligast undan skuldum og áhyggjum, flestum óverðskulduðum.

Fyrirtæki, sem við „venjulega“ fólkið höfum af seiglu einbeitt okkur að byggja upp síðustu áratugi hafa mörg orðið að engu. Hinn óbreytti Íslendingur þarf að berjast gegn ofurafli nýja hvirfilbylsins, sem eru vextirnir, skattarnir, stöðnun og margt, margt fleira. Nú hef ég miklar áhyggjur af hinni fallegu og skemmtilega lifandi íslensku sál sem ég heillaðist af þegar ég kom hingað fyrst sem barn og unglingur – já, landinu og þjóðinni sem ég á fullorðinsárum kaus að deila kjörum með.

Starfs míns vegna hjá Vinnumálstofnun hef ég að mörgu leyti getað fylgst náið með afleiðingum hrunsins haustið 2008, horft á landa mína, háa og lága, smáa og stóra, missa lífsviðurværið, missa andlitið, missa tökin. Margir hafa litið á raunir sínar sem óhjákvæmilegan hlut, stoppað stutt við, risið upp aftur og haldið áfram á nýjum vettvangi, aðrir hafa þurft að horfast í augu við að atvinnuleysi er orðin staðreynd í lífi þeirra og íslensku þjóðfélagi – og að það muni taka langan tíma að rétta sig við og losna úr þeim viðjum.

Ég nefndi í inngangi mínum að ég hefði orðið agndofa. Og ég spyr, hvað hefur komið fyrir litla Ísland? Ég segi „litla“ – við erum lítil þjóð, þar sem „allir þekkja alla“, vön að hugsa vel um og til náungans, vön að stökkva til ef eitthvað bjátar á. Við sem vinnum með afleiðingar hrunsins á einn eða annan hátt erum orðin vön að hjálpa til eftir bestu getu.

En hvert stefnir þegar þessi venjulegi landi okkar – nú á fjórða ári eftir hrun – er svo fullur örvæntingar að hann í heift og vonleysi hreytir út úr sér ókvæðisorðum, skellir hurðum og lemur í veggi andspænis óbreyttum starfsmanni opinberrar stofnunar sem í þessu tilfelli situr „hinumegin við borðið“ og reynir eftir bestu getu að aðstoða og benda á ráð úr ógöngum samkvæmt lögum og reglum sem settar hafa verið?

Ég hef áhyggjur af þessari hörku sem kraumar undir, kröftum sem áður voru jákvæðir en víða hafa breyst í ólgandi neikvæða strauma sem hvergi fá útrás.

Íslendingar eru lítil þjóð sem verður að beita þrautseigjunni sem hefur einkennt hana í gegnum aldirnar. Okkur mega ekki fallast hendur og freistast til að kenna „öðrum um“. En til þess að það gangi upp þurfum við að tendra aftur glóðina í þjóðarsálinni, virða náungann og umhverfið okkar. Það eru fleiri í basli, líka þeir sem geta talist svo heppnir að hafa fasta stöðu hjá ríki eða sveitarfélögum.

Eitt á hrunið að kenna okkur – að hægja á, finna rætur okkar, læra hvað við eigum fallega og góða fjölskyldu – kannski hjálpar það okkur smám saman að líta í eigin barm og gæta þess að gleyma ekki sjálfsvirðingunni, heldur ekki gagnvart náunganum.

Látum nýtt ár byrja með jákvæðum straumum. Reynum að búa til svigrúm fyrir nýjar hugmyndir. Landið Ísland býr yfir svo mörgum möguleikum, hér er uppspretta orku af ýmsu tagi, gjöful náttúra og tekjulindir fyrir íbúana. Við höfum orðið ýmiss konar landkynningar aðnjótandi undanfarin ár. Nýtum okkur hana. Fólkið í landinu er frjótt. Sameinum krafta okkar. Landið og fólkið verða að rísa upp úr hinum djúpa öldudal. Reynum – án þess þó að leika of mikið „Pollýönnu“ – að hressa andann og taka gleði okkar á ný.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

„Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Hvað hefur komið fyrir litla Ísland?