Lífið

Hvað er liðið úr Malcolm in the Middle að gera í dag?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtileg fjölskylda.
Skemmtileg fjölskylda. vísir
Þættirnir Malcolm in the Middle nutu gríðarlegrar vinsælda á sínum tíma og voru þeir í loftinu á árunum 2000-2006 en þeir fjölluðu um mjög svo sérstaka fjölskyldu í Bandaríkjunum.

Aðalpersónan var hinn klári Malcolm. Aðalleikararnir hafa allir verið að bralla eitthvað skemmtilegt eftir að þættirnir hættu og má þar aðallega nefna stórleikarann Bryan Cranston, sem lék faðir, Malcolm en hann sló rækilega í gegn í þáttunum Breaking Bad.

En hvað eru aðalleikararnir að gera í dag?

1. Frankie Muniz, sem lék Malcolm
Frankie Muniz
Eftir að hafa leikið njósnarann Cody Banks í myndinni Agent Cody Banks ákvað hann að hætta sem leikari árið 2008. Hann langaði að elta draum sinn, og verða kappakstursmaður og það var nákvæmlega það sem hann gerði. Fyrir stuttu fékk hann í tvígang vægt heilablóðfall og er að jafna sig þessa dagana.

2. Chris Kennedy Masterson sem lék Francis
Chris Kennedy Masterson
Chris hefur leikið í nokkrum kvikmyndum og þáttum síðan hann hætti að koma fram í þáttunum Malcolm in the Middle en í dag einbeitir hann sér best að því að vera plötusnúður og heldur hann einnig úti hlaðvarpi eða podcasti.

3. Jane Kaczmarek, sem lék mömmuna Lois
Jane Kaczmarek
Eftir að þátturinn lauk göngu sinni hélt hún áfram að leika og hefur komið við sögu í þáttunum Big Bang Theory, Law & Order og Phineas and Ferb.

4. Justin Berfield sem lék Reece
Justin Berfield
Lék eldri bróðir Malcolm, Reece, en eftir að þátturinn hætti fór hann fyrir aftan myndavélina og á í dag framleiðslufyrirtækið Virgin Produced.

Fyrirtækið er einnig í eigu auðkýfingsins Richard Branson og hefur meðal annars framleitt kvikmyndina Limitless með Bradley Cooper.

5. Erik Per Sullivan sem fór með hlutverk Dewey
Erik Per Sullivan
Hvarf algjörlega af sjónarsviðinu eftir hlutverk sitt sem litli bróðir Malcolm, Dewey, og vita fáir hvað hann gerir í dag. Orðrómur fór af stað á sínum tíma að hann væri látinn en svo er víst ekki.

6. Bryan Cranston, sem lék pabba Malcolm, Hal
Bryan Cranston er án efa sá leikari sem hefur náð mestum árangri eftir að þáttunum lauk. Hann fór með aðalhlutverkið í þáttunum Breaking Bad sem allir þekkja.

Hann hefur einnig verið í stórum hlutverkum í kvikmyndum og er hann mjög heitur biti í Hollywood í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×