Lífið

Hvert er besta kosningamyndbandið?

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Myndböndin eru jafn misjöfn og þau eru mörg.
Myndböndin eru jafn misjöfn og þau eru mörg. Vísir
Kosningabaráttan sem nú er í algleymingi hefur einkennst af fjöldamörgum myndböndum sem flokkarnir hafa dælt út á samfélagsmiðla af miklum móð.

Algengt er að framboð birti myndbönd á Facebook, Snapchat og Twitter og oftast er um að ræða myndbönd þar sem frambjóðendur eða stefna flokksins er kynnt.

Sjá einnig: Samfélagsmiðlar nýttir í kosningabaráttunni

Hér að neðan hefur Vísir tekið saman þau myndbönd sem hafa vakið hvað mest umtal og athygli á liðnum vikum. Um er að ræða 6 myndbönd frá jafnmörgum framboðum. Sum eru hugljúf, önnur fyndin og stundum eru það málefnin sem fá mest rými.

Nú er spurt: Hvaða flokkur gerði besta myndband baráttunnar? Neðst í fréttinni er könnun þar sem fólk getur sagt sína skoðun.

Dögun
Vinstri græn
Sjálfstæðisflokkurinn
Viðreisn
Framsókn
Samfylking





Fleiri fréttir

Sjá meira


×