FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 19:51

Nýr stjórnarsáttmáli mjög framsóknarlegur

FRÉTTIR

Hvað er að gerast á leikmannamarkaðnum í NBA?

Vísir Körfubolti 20. febrúar 2008 17:38
Ron Artest er orðaður við Denver
Ron Artest er orðaður við Denver NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES

Félagaskiptaglugginn í NBA deildinni rennur út annað kvöld og því er mikið slúðrað um hugsanleg leikmannaskipti á síðustu stundu. Leikmannamarkaðurinn hefur iðað síðustu daga eftir hver stórskiptin á fætur öðrum.

Fæstir hefðu reiknað með öðrum eins látum á leikmannamarkaðnum og verið hafa undanfarnar vikur, en þar ber hæst að Shaquille O´Neal er genginn í raðir Phoenix Suns í skiptum fyrir Shawn Marion sem fór til Miami, Spánverjinn Pau Gasol fór frá Memphis til LA Lakers, Jason Kidd er genginn í raðir fyrrum félaga sinna í Dallas í skiptum fyrir Devin Harris og fleiri og leikstjórnandinn Mike Bibby fór frá Sacramento til Atlanta.

Mikið er nú slúðrað um fjölda leikmanna á síðustu klukkutímunum fyrir lokun skiptagluggans.

Þannig hermir Indianapolis Star að Indiana Pacers sé tilbúð að skoða öll tilboð í framherjann Jermaine O´Neal og er félagið sagt hafa rætt við Golden State, New Jersey og Sacramento um að taka við honum. O´Neal getur losað sig frá samningi við Indiana í sumar.

Villingurinn Ron Artest hjá Sacramento hefur verið orðaður mikið við Denver Nuggets en sagt er að þeir samningar strandi á því að Denver vill ekki láta Linas Kleiza fara í skiptunum. Það var Sacramento Bee sem sagði fyrst frá þessu. Artest hefur látið í það skína að hann vilji fara frá Sacramento, en hann hefur reyndar verið orðaður við fleiri lið - m.a. meistara San Antonio.

Leikstjórnandinn Andre Miller hjá Philadelphia hefur verið orðaður við aragrúa liða í allan vetur, en nýjustu fregnir frá Philadelphia herma að félagið vilji ekki láta hann fara.

Bæði Eddy Curry og Zach Randolph hjá New York hafa verið orðaðir við brottfor frá félaginu, en það er reyndar ekkert nýtt að leikmenn New York séu í hringiðu slúðursins. Þannig hefur verið talað um að New Jersey, New York og Miami séu í viðræðum um stór skipti þar sem miðherjinn Curry færi til Miami, Vince Carter færi frá New Jersey til New York og að New Jersey fengi þá Jason Williams og Ricky Davis, sem báðir eiga lítið eftir af samningum sínum. Það var New York Daily News sem greindi frá þessu.


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Körfubolti 23. maí 2013 16:00

Coach K hættur við að hætta með bandaríska landsliðið

Mike Krzyzewski, betur þekktur sem Coach K, verður áfram þjálfari bandaríska landsliðsins í körfubolta en hann mun samkvæmt heimildum bandaríska fjölmiðla tilkynna þetta á blaðamannafundi í dag. Krzyz... Meira
Körfubolti 23. maí 2013 07:31

Dramatískur sigur Miami í framlengingu

LeBron James var sem fyrr í aðalhlutverki þegar að Miami tók forystu gegn Indiana í úrslitarimmu Austurdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta. Meira
Körfubolti 22. maí 2013 23:20

Bandaríkjamaður þjálfar Keflavíkurliðin

Keflavík fann í kvöld arftaka Sigurðar Ingimundarsonar en félagið réð þá Bandaríkjamanninn Andy Johnston sem þjálfara karla- og kvennaliðs félagsins. Meira
Körfubolti 22. maí 2013 12:15

Gaf eina milljón dollara í neyðarsjóð

Kevin Durant, einn besti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta og leikmaður Oklahoma City, gaf eina milljón dollara til Rauða krossins vegna hamfarana í Oklahoma á dögunum. Meira
Körfubolti 22. maí 2013 08:45

Landsliðsmaður hóf ferilinn í torffjósi

Axel Kárason, landsliðsmaður í körfubolta, er í skemmtilegu viðtali á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands í Hvanneyri. Meira
Körfubolti 22. maí 2013 07:16

San Antonio komið í 2-0

Tony Parker var magnaður í mikilvægum sigri San Antonio á Memphis, 93-89, í framlengdum leik í lokaúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Meira
Körfubolti 21. maí 2013 19:08

Justin valinn í landsliðið fyrir Smáþjóðaleikana

Landsliðsþjálfararnir í körfubolta hafa valið leikmannahópa sína fyrir Smáþjóðaleikana sem hefjast þann 26. maí næstkomandi. Meira
Körfubolti 19. maí 2013 22:06

Tony Parker frábær og San Antonio leiðir 1-0

San Antonio Spurs vann öruggan 105-83 sigur á Memphis Grizzlies í fyrsta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA í kvöld. Meira
Körfubolti 19. maí 2013 13:32

14 stig Jóns Arnórs í lokaumferðinni

Jón Arnór Stefánsson skoraði 14 stig fyrir CAI Zaragoza sem lagði UCAM Murcia 108-74 í lokaumferð spænsku deildarkeppninnar í dag. Meira
Körfubolti 19. maí 2013 11:42

Berst fyrir lífi sínu eftir hnífstungu

Predrag Danilovic, sem árið 1994 var valinn besti körfuboltamaður Evrópu, berst fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi í Belgrad. Meira
Körfubolti 19. maí 2013 11:15

Indiana kláraði New York

Indiana Pacers tryggði sér í nótt sæti í úrslitum Austurdeildar NBA með 106-99 sigri á New York Knicks í sjötta leik liðanna. Meira
Körfubolti 18. maí 2013 12:45

Búið að selja Sacramento Kings

Kevin Johnson borgarstjóri Sacramento tilkynnti í gær að eigendur NBA körfuboltaliðsins Sacramento Kings hafa samþykkt að selja hugbúnaðarviðskiptajöfrinum Vivek Ranadive félagið. Meira
Körfubolti 18. maí 2013 11:00

Nowitzki tilbúinn að lækka launinn

Dirk Nowitzki þýska stórstjarna NBA körfuboltaliðsins Dallas Mavericks hyggst taka á sig verulega launalækkun næsta sumar í von um að lokka aðra stórstjörnu til liðsins. Meira
Körfubolti 17. maí 2013 23:30

Phil Jackson: Jordan var miklu meiri leiðtogi en Kobe

Phil Jackson vann fjölmarga NBA-titla með bæði Michael Jordan (6) og Kobe Bryant (5) en hefur hingað til ekki verið mikið fyrir að bera þessa tvo stórbrotnu leikmenn saman eða fyrr en nú. Jackson ber ... Meira
Körfubolti 17. maí 2013 22:48

Siggi Ingimundar þjálfar ekki áfram í Keflavík

Sigurður Ingimundarson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur í Dominos-deild kvenna, verður ekki áfram þjálfari meistaraflokka Keflavíkur en hann þjálfaði einnig karlaliðið síðasta vetur. Þet... Meira
Körfubolti 17. maí 2013 09:00

Reynslan hafði betur | Golden State úr leik

San Antonio er komið áfram í úrslit Vesturdeildarinnar í NBA-deildinni í körfubolta eftir sigur á Golden State í nótt, 94-82. Meira
Körfubolti 16. maí 2013 10:30

Jón Halldór þjálfar Grindavík

Keflvíkingurinn Jón Halldór Eðvaldsson hefur gert tveggja ára samning við Grindavík um að stýra kvennaliði félagsins í körfubolta. Meira
Körfubolti 16. maí 2013 09:00

Miami og Memphis áfram

Oklahoma City og Chicago Bulls eru bæði úr leik í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta eftir að hafa tapað rimmum sínum 4-1. Meira
Körfubolti 15. maí 2013 22:36

Oddur og Oddur sömdu við Val

Nýliðar Vals hafa styrkt sig með tveimur leikmönnum fyrir komandi tímabil í Dominos-deild karla í körfubolta en það eru þeir Oddur Birnir Pétursson og Oddur Ólafsson. Þetta kom fyrst fram á karfan.is ... Meira
Körfubolti 15. maí 2013 07:00

San Antonio náði forystunni á ný

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. San Antonio og Indiana unnu þá sigra á heimavelli. Meira
Körfubolti 14. maí 2013 23:17

Falur nýr formaður í Keflavík - Guðjón og Albert kom inn í stjórn

Falur Jóhann Harðarson, margfaldur Íslandsmeistari með Keflavík sem bæði leikmaður og þjálfari, er tekinn við sem formaður Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Meira
Körfubolti 14. maí 2013 07:45

Skoraði í eigin körfu | Myndband

Chicago Bulls lenti í alls kyns vandræðum gegn Miami Heat í nótt en vandræðalegasta "skot“ kvöldsins átti bakvörðurinn Marquis Teague. Meira
Körfubolti 14. maí 2013 07:00

Miami og Memphis komin í 3-1

Miami og Memphis unnu bæði lykilleiki í rimmum sínum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Meira
Körfubolti 13. maí 2013 19:30

Fékk rúmlega fjögurra milljóna króna sekt

Tom Thibodeau, þjálfari Chicago Bulls, var ekki sáttur við dómgæsluna í fyrstu þremur leikjunum í einvígi hans manna og Miami Heat í NBA-deildinni í körfubolta og lét nokkur vafasöm orð fjalla á blaða... Meira
Körfubolti 13. maí 2013 06:54

Curry meiddur en spilaði í sigri Golden State

Hið unga lið Golden State Warriors náði í gærkvöldi að jafna metin gegn San Antonio Spurs í rimmu liðanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Körfubolti / Hvað er að gerast á leikmannamarkaðnum í NBA?
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000