Innlent

Húsnæði Caruso friðað síðan 2012

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Húsið er kyrfilega merkt með ártalinu 1892 en þá var það byggt af Jóni Þórðarsyni, kaupmanni.
Húsið er kyrfilega merkt með ártalinu 1892 en þá var það byggt af Jóni Þórðarsyni, kaupmanni. Vísir/GVA
Hús veitingastaðarins Caruso að Þingholtsstræti 1 er yfir 100 ára gamalt og var ytra byrði hússins og viðbygging þess friðað árið 2012.

Ákveðnar skyldur liggja á herðum eigenda friðaðra húsa varðandi viðhald og viðgerðir. Samkvæmt heimildum Vísis hefur eigandi húsnæðisins ekki sinnt viðhaldi sem skyldi og verið tregur til að reiða af hendi greiðslur vegna viðgerða á húsinu.

Húsið, sem er byggt úr steini, var reist árið 1892. Viðbyggingin, sem er tvílyft timburhús, var svo reist árið 1907. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Minjastofnunar um hús Caruso byggði Jón Þórðarson kaupmaður það en fyrir á lóðinni var gamalt timburhús sem hann lét rífa.

Árið 1897 stækkaði Jón húsið og fékk það þá þá stærð sem það er í dag. Verslun var á jarðhæð hússins, á næstu hæð voru eldhús og fjögur íbúðarherbergi og á efsta lofti fimm herbergi. Undir öllu húsinu var svo kjallari.

Í timburhúsinu sem Jón byggði svo 1907 voru þrjú íbúðarherbergi, eldhús og gangur.

Jón var mikill brautryðjandi í verslunarrekstri og var Verzlun Jóns Þórðarsonar rekin í húsinu fram á 7. áratug síðustu aldar. Caruso hefur svo verið til húsa í Þingholtsstræti 1 síðustu 15 árin.


Tengdar fréttir

Veitingamaðurinn á Caruso læstur úti af húseigandanum

José Garcia, veitingamaður á Caruso, læstur úti af staðnum af húseigandanum vegna deilna um leigusamning. Mikið af eignum inni á staðnum og veggur reistur til að varna starfsfólki inngöngu. Kærði atvikið til lögreglu.

Lögreglan gerir ekki neitt í Caruso-málinu

Eigandi veitingastaðarins Caruso fær enga aðstoð frá lögreglu við að komast inn á staðinn eftir að húseigandinn réðst þangað inn og skipti um skrár. Sérfræðingur segir lögregluna með þessu viðurkenna það að menn taki lögin í sínar hendur.

Rekstur Caruso lamaður eftir yfirtöku

José Garcia veitingamaður á Caruso segir framkomu húseigenda ótrúlega og hann efist um að þessi framkoma þekkist í öðrum Evrópulöndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×