Innlent

Húsleitir vegna fíkniefnamála í Hafnarfirði

Atli Ísleifsson skrifar
Á öðrum staðnum var lagt hald á um 1,5 kíló af kannabisefnum.
Á öðrum staðnum var lagt hald á um 1,5 kíló af kannabisefnum. Vísir/Ríbert
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi húsleit á tveimur stöðum í Hafnarfirði í gær.

Á öðrum staðnum var lagt hald á um 1,5 kíló af kannabisefnum, auk ýmissa muna sem grunur leikur á að séu þýfi. Lagði lögregla meðal annars hald á talsvert af verkfærum og nokkrar fartölvur.

„Á hinum staðnum, í óskyldu máli, tók lögregla einnig í sína vörslu kannabisefni, eða um hálft kíló. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, en í fórum mannsins fannst enn fremur amfetamín,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×