Innlent

Húsleit í miðjum gleðskap

Lögreglumenn úr fíkniefnadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gerðu húsleit í Grafarvogi í gærmorgun. Þar fundust fíkniefni, sem talin eru vera amfetamín og kannabis.



Hávær gleðskapur hafði verið í húsinu í einhvern tíma. Bárust lögreglu vísbendingar um málið og því var ákveðið að leita eftir úrskurði um heimild til húsleitar.



Gleðskapurinn var í fullum gangi þegar lögregluna bar að garði. Fíkniefnin fundust svo við leit eins og áður sagði. Ekki var um mikið magn að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×