Golf

Hunter Mahan sigraði með glæsibrag á Barclays

Mahan lék frábærlega um helgina.
Mahan lék frábærlega um helgina. AP/Getty
Bandaríkjamaðurinn Hunter Mahan sigraði í kvöld á sínu sjötta móti á PGA-mótaröðinni á ferlinum en hann lék best allra á Barclays mótinu sem fram fór á Ridgewood vellinum.

Lokahringurinn var mjög spennandi en margir sterkir kylfingar skiptust á að taka forystuna framan af. Það var þó Mahan sem setti í nýjan gír á seinni níu holunum þar sem hann fékk fimm fugla, þrjú pör og einn skolla.

Mahan sigraði að lokum með tveimur höggum eftir lokahring upp á 65 högg en hann endaði mótið á samtals 14 höggum undir pari.

Cameron Tringale, Jason Day og Stuart Appleby deildu öðru sætinu á 12 höggum undir pari en Ernie Els, Matt Kuchar og William McGirt komu þar á eftir á 11 undir pari.

Rory McIlroy byrjaði mótið illa og náði aldrei að blanda sér í baráttu efstu manna en hann endaði að lokum í 22. sæti á fimm höggum undir pari.

Þá nagar Jim Furyk sig eflaust í handabökin en eftir að hafa leitt fyrir lokahringinn endaði hann í áttunda sæti á 10 höggum undir pari.

Síðan að Furyk sigraði síðast á PGA-mótaröðinni árið 2010 hefur hann átta sinnum leitt fyrir lokahringinn en ávalt misst niður forystuna. Hann á því greinilega erfitt með að leika vel undir pressu en með örlítið meiri heppni gæti þessi vinsæli kylfingur blandað sér í baráttuna um Fed-Ex bikarinn á næstu vikum.

Næsta mót á PGA-mótaröðinni er Deutsche Bank meistaramótið sem fram fer á TPC Boston vellinum en þar hafa aðeins 100 stigahæstu kylfingarnir í Fed-Ex bikarnum þátttökurétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×