Hungursneyð lýst yfir í Suður-Súdan atli ísleifsson skrifar 20. febrúar 2017 12:12 Í forgangi hjá UNICEF er einnig að dreifa hreinu vatni, þar sem vatn er af skornum skammti á þurrkatímabilinu sem nú stendur yfir. unicef
Hungursneyð var í morgun lýst yfir í Unity-fylki í Suður-Súdan þar sem 100 þúsund manns eiga á hættu að deyja úr hungri. Ein milljón manna til viðbótar er að auki á barmi hungursneyðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem er með mikinn viðbúnað í landinu. Hungursneyðin er sú fyrsta sem lýst er yfir í heiminum í tæplega sex ár, en hungursneyð var síðast lýst yfir í heiminum árið 2011 í Sómalíu. „Neyðaraðgerðir UNICEF miða að því að meðhöndla börn gegn vannæringu og koma í veg fyrir að fleiri verði vannærð. UNICEF styður 620 næringarmiðstöðvar vítt og breitt um landið og 50 vannæringarspítala. Mælist 15% barna bráðavannærð er talað um neyðarástand. Ástandið er grafalvarlegt, enda eru á sumum svæðum í Unity-fylki nú allt að 42% barna með bráðavannæringu. Í forgangi hjá UNICEF er einnig að dreifa hreinu vatni, þar sem vatn er af skornum skammti á þurrkatímabilinu sem nú stendur yfir. Mikilvægt er sömuleiðis að koma í veg fyrir að börn veikist af sjúkdómum og áhersla er því lögð á bólusetningar og almenna heilsugæslu,“ segir í tilkynningunni.Tafarlausra aðgerða þörf UNICEF, Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) og Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) vöruðu í morgun við því að tafarlausra aðgerða væri þörf til að koma í veg fyrir að fleiri deyi úr hungri í Suður-Súdan. „Stofnanirnar þrjár hefðu þegar hjálpað milljónum manna í landinu. Óheftur aðgangur hjálparstofnana að öllum þeim sem væru í hættu vegna hungursneyðar væri hins vegar lykilatriði, auk þess sem nauðsynlegt væri að stórauka enn við allar neyðaraðgerðir. Um 4,9 milljónir manna búa nú við fæðuóöryggi í Suður-Súdan eða um 40% landsmanna. Búist er við að sú tala hækki enn frekar er nær dregur sumri ef ekki verður brugðist skjótt við.Neyðaraðgerðir í Nígeríu björguðu ótal börnumSuður-Súdan er yngsta ríki heims. Það klauf sig frá ríkinu Súdan eftir áratugalanga borgarastyrjöld sem lauk með friðarsamningum árið 2005. Sögulegar kosningar fóru síðan fram árið 2011 þar sem íbúar Suður-Súdan kusu sig frá Súdan. Átök brutust hins vegar út í Suður-Súdan í lok árs 2013 og hafa nú staðið yfir í rúm þrjú ár. Í fyrrasumar hörðnuðu þau enn frekar, með hrikalegum afleiðingum. Ástæður hungursneyðarinnar nú eru ekki síst stríðsátökin sem hafa hindrað matvælaframleiðslu og búskap hjá almenningi og stökkt fólki á flótta. Verðbólga upp á 800% og afar slæmt efnahagsástand hafa gert illt verra,“ segir í tilkynningunni. Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, segir að það gerist ekki á hverjum degi að hungursneyð sé lýst yfir í heiminum og í dag sé því sorgardagur. „Hungursneyð er lýst yfir með svokallaðri Integrated Food Security Phase Classification (IPC). Um algjört efsta stig er að ræða. Formleg yfirlýsing sem þessi þýðir að fólk er þegar farið að svelta til dauða. Það á ekki síst við um börn og yngstu börnin eru alltaf þau sem eru veikust fyrir. Í nóvember á seinasta ári sendi UNICEF út neyðarákall vegna Nígeríu þar sem ástandið jaðraði við hungursneyð víða í norðausturhluta landsins. Gríðarlega umfangsmiklar neyðaraðgerðir voru settar í gang, meðal annars með hjálp héðan frá Íslandi. Góðu fréttirnar eru þær að staðan er miklu betri í dag. Þarna var ekki lýst yfir hungursneyð og það tókst að bjarga afar mörgum börnum. Nú ríður á að veita neyðarhjálp í Suður-Súdan hratt og örugglega og samstarfsfólk okkar úti er vakið og sofið yfir þeirri miklu ábyrgð,“ segir Bergsteinn.Styrktarsíða UNICEF.
Mest lesið Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Getur gosið hvenær sem er Innlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent „Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Sprengjuhótun í Billund Erlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Fleiri fréttir Sprengjuhótun í Billund Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Sjá meira