Hundur drap hænur á heimili í Breiðholti 9. febrúar 2012 09:00 Systkinin Pétur Hrafn, tveggja ára og Ásdís Ósk, sex ára misstu landnámshænurnar sínar um síðustu helgi og bíða nú eftir því að borgaryfirvöld ákveði hvort fjölskyldan fái að halda hænur á lóð sinni. Fréttablaðið/Anton „
Það er ekki hægt að vera reiður við hundinn, þetta er bara í eðlinu,“ segir Brynjar Þór Jónasson, íbúi í Lambaseli í Breiðholti, sem varð fyrir því að hundur drap þrjár hænur í garði hans. Fjölskyldan í Lambaseli 11 hefur frá því í nóvember beðið eftir því að borgaryfirvöld afgreiði umsókn hennar um að fá að halda landnámshænur sem hún fékk um svipað leyti. Á föstudagskvöldið síðasta tók málið óvænta stefnu þegar laus Siberian Huskey hundur braut sér leið inn í hænsnakofann og drap hænurnar. Hann stökk blóðugur á flótta þegar heimilisfólkið varð hans vart. „Það er aðallega eigandi hundsins sem er ekki að standa sig,“ segir Brynjar sem nú kveðst munu bíða niðurstöðu borgarinnar áður en frekara framhald verður á hænsnahaldinu. Málið hafi komið illa við börnin á heimilinu. „Þetta er að verða sorgarsaga. Við erum með þrjú börn og þetta voru nú fyrst og fremst þeirra gæludýr. Hvert barn átti eina hænu.“ Í augnablikinu er umsókn fjölskyldunnar í Lambaseli hjá heilbrigðisnefnd sem frestaði málinu á fundi í síðustu viku. Þá lá fyrir umsögn skipulagsstjóra sem leggst gegn leyfisveitingunni með vísan í heilbrigðisreglugerð og í ákvæði samþykktar um takmörkun búfjárhalds í Reykjavík. „Hænsnfuglar eru samkvæmt íslenskri hefð flokkaðir sem húsdýr og teljast til búfjár,“ segir skipulagsstjóri sem segir afstöðu sína enn fremur byggjast á mótmælum sem komið hafi fram. „Við töluðum við alla nágranna áður en til þessa kom og það var enginn á móti þessu,“ segir Brynjar hins vegar. Hann segir enn fremur fráleitt að skilgreina hænur sem búfé. „Það er bara kjaftæði. Þær eru bara gæludýr. Það heyrist ekkert í hænunum og það er enginn óþrifnaður af þeim.“ Brynjar segist telja eðlilegt að þeim sé gefið leyfi fyrir hænunum. Fyrir aftan hús þeirra sé aðeins mói. „Það var alltaf talað um að í efstu byggðum Breiðholts væri þetta leyfilegt. Í næstu götu er fólk með hesta og það virðist ekkert mál að fá að vera með kanínur, bara ekki hænur.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira