Erlent

Hundruð flóttamanna taldir hafa farist við Líbýustrendur

Bjarki Ármannsson skrifar
Þúsundum flóttamanna hefur verið bjargað við strendur Ítalíu síðustu vikur.
Þúsundum flóttamanna hefur verið bjargað við strendur Ítalíu síðustu vikur. Vísir/EPA
Hundruð manna eru talin hafa farist þegar báti með allt að sjö hundruð flóttamönnum um borð hvolfdi í landhelgi Líbýu. Ítalska landhelgisgæslan, maltneski sjóherinn og ýmis skip í einkaeigu taka nú þátt í björgunaraðgerðum en hingað til hefur 28 manns verið bjargað.

Talsmaður ítölsku landhelgisgæslunnar segir í samtali við BBC að alls taki tuttugu skip og þrjár þyrlur þátt í leitinni. Varðskipið Týr, sem tekið hefur þátt í björgunarstarfi á þessum slóðum undanfarnar vikur, er í landi og því ekki meðal þeirra sem nú eru að störfum.

Sjá einnig: Vel gekk að færa flóttafólkið í land

Joseph Muscat, forsætisráðherra Möltu, segir í samtali við dagblaðið Times of Malta að björgunarmenn séu „bókstaflega að reyna að finna fólk á lífi fljótandi á milli hinna dauðu.“ Hann segir að ef fjöldi hinna sem talinn er af verði staðfestur, sé um mesta harmleik á Miðjarðarhafinu í mörg ár að ræða.

Banaslys sem þessi eru ekki óalgeng á Miðjarðarhafinu þar sem um 170 þúsund manns reyndu í fyrra að sigla til Ítalíu frá Afríku og Miðausturlöndum. Ítalir lögðu í fyrra niður eftirlits- og björgunaraðgerðir sem báru nafnið Mare Nostrum vegna kostnaðar og vegna þess að sumir töldu það hvetja flóttamenn til að reyna við siglinguna. Talsmenn samtaka á borð við Amnesty og Save the Children hvetja Evrópusambandið til að auka við eftirlit á ný til að fækka banaslysum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×