Innlent

Hundrað þúsund tonnum bætt við loðnukvótann

Svavar Hávarðsson skrifar
Mikilvægi uppsjávarveiða er gríðarlegt og gætu fréttirnar komið fram í hagvísum á næstunni.
Mikilvægi uppsjávarveiða er gríðarlegt og gætu fréttirnar komið fram í hagvísum á næstunni. vísir/óskar
Loðnuleiðangur Hafrannsóknastofnunar eftir áramótin sýnir hvað mestu útbreiðslu loðnu fyrir Vestfjörðum og að Norðurlandi um langt árabil. Þegar liggur fyrir að aflaráðgjöf Hafrannsóknastofnunar verður aukin um 100 þúsund tonn hið minnsta.

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur frá 5. janúar verið við loðnumælingar og mælt loðnu sem fundist hefur frá Vestfjörðum og að Norðurlandi. Jafnframt leitaði og mældi Birtingur NK loðnu frá Austfjörðum og að Norðurlandi síðustu daga.

Loðna hefur fundist mjög víða í leiðangrinum á öllu rannsóknasvæðinu nema úti fyrir Austurlandi.

Í kjölfar mælinga á stærð loðnustofnsins í september og október síðastliðnum lagði stofnunin til að heildaraflamark vertíðarinnar yrði 260 þúsund tonn – en þar af var hlutdeild Íslands 127.000 tonn. Í tilkynningu Hafró í gær sagði að enda þótt endanlegum mælingum á stærð veiðistofns loðnu ljúki ekki fyrr en í næstu viku „telur Hafrannsóknastofnun rétt að fram komi að mælingin mun leiða til þess að stofnunin leggi til aukningu í aflamarki fyrir vertíðina 2014/2015. Miðað við varfærnar forsendur á þessari stundu, mun sú aukning að minnsta kosti verða um 100 þúsund tonn.“

Lokaráðgjöf veitt að afloknum leiðangrinum

Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, vill ekki sýna á spilin um hversu mikil aukning verði hugsanlega gerð á ráðgjöfinni til viðbótar við þau 100 þúsund tonn sem eru í hendi. „En þetta lítur alveg þokkalega út og við töldum rétt að gefa mönnum upplýsingar um það. Eftir því sem líður á vertíðina skiptir hver dagur máli í því að menn viti hver staðan er og menn geti skipulagt veiðarnar í samræmi við það,“ segir Jóhann og bætir við að frekari mælingar taki nú við en loðnan sé mjög dreifð og frekari mælinga því þörf.

Hafrannsóknastofnun veitir lokaráðgjöf sína um aflamark að afloknum leiðangrinum. Mælingar á stofninum í haust bentu til þess að hrygningarstofninn yrði um 660 þúsund tonn á hrygningartíma. Aflaregla gerir ráð fyrir að 400 þúsund tonn séu skilin eftir til hrygningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×