Innlent

Hundrað sjúklingar bíða útskriftar

Linda Blöndal skrifar
Ekki er hægt að útskrifa um hundrað sjúklinga af Landspítalanum þar sem viðeigandi úrræði eru ekki til staðar. Nýting á sjúkrarúmum er langt yfir það sem ráðlagt er, segir Guðríður Katrín Þórðardóttir, formaður hjúkrunarráðs spítalans. 

Löng bið eftir útskrift

Á opnum fundi sem hjúkrunarráðið hélt í dag kom fram að í um hundrað sjúkrarúmum liggur fólk sem hægt er að útskrifa en pláss í viðeigandi úrræðum fyrir fólkið, til dæmis í endurhæfingu, heimahjúkrun eða á hjúkrunarheimili, er ekki til staðar nema kannski eftir margra vikna bið. Illmögulegt er því að taka á móti nýjum sjúklingum nema á göngum spítalans. 

Yfir hundrað prósent nýting rúma

„Það er bara þannig að það sem kemur inn þarf að fara aftur út og það gengur ekki alltaf svoleiðis fyrir sig. Það flæðir í raun bara yfir á spítalanum,” sagði Guðríður í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Hún segir að ástandið tengdist ekki verkföllum sem hafa sligað spítalann heldur hafi staðan skapast áður en til dæmis læknaverkfallið skall á. Spítalinn sé að jafnaði með yfir hundrað prósent nýtingu á rúmum. 

Langt umfram tilmæli Landlæknis

Landlæknir mælist til þess að nýting sjúkrarúma fari ekki yfir 85 prósent, vegna öryggis sjúklinga. Utan spítalans eru hins vegar alls ekki næg úrræði fyrir þá sem þurfa að útskrifast og því má segja að um hundrað manns liggi fastir á spítalanum til lengri eða skemmri tíma. Margar vikur getur tekið fyrir sjúkling að útskrifast á viðeigandi stað.

Allir tapa

Kostnaður við eitt sjúkrarúm er um hundrað þúsund krónur á sólarhring miðað við um 20 þúsund sem það myndi kosta fyrir rúm, til dæmis á hjúkrunarheimili. Eitt hundrað sjúkrarúm á einum sólarhring kosta því tíu milljónir á dag og því má segja að allir tapi á ástandinu.

Aukin sókn af landsbyggðinni

„Það þarf að fjölga hjúkrunarrýmum og niðurskurður á landsbyggðinni eykur eftirspurn eftir þjónustu hér, eins og fæðingarþjónustu og í skurðaðgerðir og þess háttar. Við viljum heyra um lausnirnar núna,” segir Guðríður og bætir við að aðstæður séu erfiðar fyrir hjúkrunarfræðinga sem séu hreinlega að troða marvaða í vinnunni daglega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×