Skoðun

Hundrað ára sýn

Katrín Jakobsdóttir skrifar
Einn vandi stjórnmálanna er að við hugsum í fjögurra ára kjörtímabilum. Stóru málin á verksviði stjórnmálanna verða þó ekki leyst á svo skömmum tíma heldur þarf mun lengri tíma til að marka þar stefnu og fylgja henni eftir. Loftslagsbreytingar eru ágætt dæmi um málaflokk sem allir vita að mun hafa gríðarleg áhrif á líf okkar en mörgum reynist samt erfitt að eiga við því þar duga engar skammtímalausnir. Þegar við hugsum hlutina til langs tíma – til dæmis til næstu 100 ára – er augljóst að grípa þarf til róttækra aðgerða til að vinda ofan af þessari þróun. Með samstilltu átaki er bæði hægt að draga úr þessari þróun og skipuleggja viðbrögð. Þá þarf hins vegar að hugsa til lengri tíma en fjögurra ára.

Það er hollt að spyrja sig spurningarinnar „Hvar viljum við vera eftir 100 ár?“ í tengslum við fleiri málaflokka. Á sama tíma og hagvöxtur eykst víða, fjölgar fátækum. Hagvöxturinn skilar sér ekki í bættum hag þeirra sem minnst hafa milli handanna heldur fer hlutfallslega mest til þeirra sem þegar eru mjög ríkir. Í þessu samhengi má benda á nýlega bók hagfræðingsins Thomas Piketty, sem skjalfestir þessa þróun í mjög ítarlegu máli. Þessu þarf að breyta þannig að verðmætin dreifist jafnar og komi öllum, ekki aðeins sumum, til góða. Í þessu samhengi má einnig benda á að samkvæmt nýlegri skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hafa aldrei verið fleiri á flótta undan átökum frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hér er því aftur á ferð vandamál sem ekki verður leyst að fullu á fjórum árum en væri verðugt verkefni stjórnmálanna næstu 100 árin.

Að lokum er rétt að nefna stjórnskipulagið sjálft, lýðræðið. Hingað til hefur lýðræði verið tengt við kosningar til Alþingis og sveitarstjórna á fjögurra ára fresti, en í grunninn snýst lýðræði um að fólk – „lýðurinn“ – hafi aðkomu að sameiginlegum ákvörðunum samfélagsins. Slíka aðkomu má tryggja með margs konar hætti öðrum en hefðbundnum atkvæðagreiðslum. Eitt af stóru verkefnum stjórnmálanna næstu 100 árin er að auka lýðræðislega þátttöku borgaranna og draga úr vægi sérhagsmuna í opinberri ákvarðanatöku.




Skoðun

Sjá meira


×