Lífið

Hundar og hámenning hjá Viðreisn

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hundalíf hjá Viðreisn.
Hundalíf hjá Viðreisn. skjáskot
Á lokametrum kosningabaráttunnar munu fulltrúar allra flokka sem bjóða fram til Alþingis deila með sér Snapchat-reikningi fréttastofu 365. Þar geta áhorfendur fylgst með því sem á daga þeirra drífur þegar svo stutt er til kosninga.

Það eina sem þarf að gera er að bæta við reikningnum stod2frettir og þannig má sjá þær myndir og myndbrot sem frambjóðendurnar hlaða upp.

Viðreisn fer með tögl og hagldir á Snapchatinu í dag. Flokkurinn er bjartsýnn þessa dagana enda hafa kannanir að undanförnu sýnt að flokkurinn virðist fljúga inn á þing.

Til að fylgjast með ævintýrum þeirra þarf sem fyrr segir einungis að bæta við stod2frettir eða beina myndavél símans, þegar kveikt er á Snapchat, að gula merkinu hér að neðan.

Þá mætir fulltrúi flokksins í beina útsendingu á Vísi klukkan 13:30 í dag. Þá geta lesendur sent inn spurningar til frambjóðenda á Facebook-síðu Vísis. Hana má nálgast með því að smella hér.

Flokkunum hefur öllum verið boðið að nýta sér aðgang fréttastofunnar. Með því að kveikja á Snapchat og beina myndavélinni að gula reitnum geturðu bætt við Kvöldfréttum Stöðvar 2 með einföldum hætti.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×