Lífið

Hún er svo orkumikil og góðhjörtuð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Billy Bob og Angelina voru saman í tvö ár.
Billy Bob og Angelina voru saman í tvö ár. Vísir/Getty
Leikarinn Billy Bob Thornton segir í samtali við vefsíðuna YourTango að hann haldi enn miklu sambandi við fyrrverandi eiginkonu sína, Angelinu Jolie, en þau skildu í maí árið 2003.

„Hún er ótrúleg, ótrúleg. Hún er svo orkumikil og svo góðhjörtuð. Við tölum saman við og við. Hún tryggir það að ég hafi það gott og ég geri slíkt hið sama fyrir hana,“ segir Billy Bob.

Billy Bob og Angelina eyddu tveimur stormasömum árum saman og hefur leikarinn látið hafa það eftir sér að hann hafi klúðrað sambandinu því hann hélt að hann væri ekki nógu góður fyrir hana.

Angelina hefur verið með leikaranum Brad Pitt síðan árið 2005 og eiga þau sex börn saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×