Fótbolti

Hummels vill fara til Bayern

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mats Hummels.
Mats Hummels. vísir/getty
Borussia Dortmund tilkynnti í dag að miðvörðurinn Mats Hummels hefði beðið um að fá að fara frá félaginu.

Hummels vill fara til Bayern München í sumar en þá verða þýsku meistararnir að greiða fyrir hann.

Varnarmaðurinn á eitt ár eftir af samningi sínum við Dortmund. Bayern á enn eftir að gera tilboð í leikmanninn en það er væntanlega á leiðinni.

Hummels er ekki með neina klausa í samningi sínum að losna en Dortmund vill örugglega fá pening fyrir hann í sumar í stað þess að missa hann frítt að ári liðnu.

Dortmund hefur líka sagt að leikmaðurinn fari ekki nema það koma gott tilboð frá Bayern.

Hummels hefur verið í herbúðum Dortmund síðan 2008 en hann kom einmitt þangað frá Bayern.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×