Fótbolti

Hummels fer ekki til Man Utd | Verður áfram hjá Dortmund

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hummels varð heimsmeistari með Þýskalandi í fyrra.
Hummels varð heimsmeistari með Þýskalandi í fyrra. vísir/getty
Mats Hummels hefur ákveðið að vera áfram í herbúðum Borussia Dortmund, þrátt fyrir áhuga Manchester United og fleiri liða.

„Að sjálfsögðu er það mikill heiður þegar lið eins og Manchester United, sem er eitt það stærsta í heimi, sýnir þér áhuga,“ sagði Hummels.

„En ég hef ákveðið að halda kyrru fyrir hjá Dortmund í ár. Ég vil vera áfram hérna.“

Hummels, sem er fyrirliði Dortmund, á tvö ár eftir af samningi sínum við liðið sem endaði í 7. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í vetur. Þá tapaði Dortmund fyrir Wolfsburg í bikarúrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×