Enski boltinn

Hummels ekki búinn að lofa Van Gaal neinu

Mats Hummels.
Mats Hummels. vísir/getty
Það var hermt í gær að þýski varnarmaðurinn Mats Hummels væri búinn að lofa Louis van Gaal, stjóra Man. Utd, því að koma til félagsins.

Það er búið að orða Hummels við Man. Utd undanfarin ár en ekkert hefur gerst hingað til.

„Bara svo það sé á hreinu þá eru þessar fréttir um þetta loforð hreinn upppspuni," skrifaði Hummels á Twitter-síðu sína.

Leikmaðurinn er með samning við Dortmund til ársins 2017 og hefur ekki sýnt nein áhuga á því að yfirgefa félagið hingað til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×