Fótbolti

Hummels: Vetrarfríið hjálpar okkur ekki á móti Arsenal

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Mats Hummels.
Mats Hummels. vísir/getty
Mats Hummels, miðvörður Bayern München, segir að vetrarfríið sem leikmenn liðsins fengu ásamt hinum liðunum í þýsku 1. deildinni hjálpi Bæjurum ekkert þegar kemur að stórleikjunum á móti Arsenal í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Þrátt fyrir að hafna í fyrsta sæti síns riðils loksins fékk Arsenal erfiða viðureign gegn einu besta liði álfunnar í 16 liða úrslitum keppninnar en á meðan Skytturnar voru á fullu að spila um jólin og áramótin voru Þjóðverjarnir í frí. Liðin mætast í fyrri leiknum 15. febrúar.

„Þetta hefur áhrif á hvorugt liðið að mínu mati þegar komið er svona langt fram á tímabilið. Bæði við og Arsenal erum komin í ákveðinn takt auk þess sem við spilum þrjá leiki áður en við mætum þeim. Það mun ekki hafa nein áhrif á leikinn að við fengum vetrarfrí en ekki Arsenal,“ segir Hummels.

Bæjarar voru í smá vandræðum framan af leiktíð en enduðu á sex sigrum fyrir jól og endurheimtu efsta sætið í þýsku deildinni. Nýr þjálfari liðsins, Carlo Ancelotti, er að koma sínum áherslum áleiðis smátt og smátt að sögn David Alaba, leikmanns Bayern.

„Kannski þurftum við bara smá tíma til að skilja almennilega það sem nýi þjálfari vildi fá frá okkur. Við sýndum samt alveg í síðustu leikjunum fyrir jól að við erum á réttri braut,“ segir David Alaba.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×