Bílar

Hulkenberg ekur fyrir Porsche í Le Mans

Finnur Thorlacius skrifar
Hulkenberg í Porsche 911 Targa.
Hulkenberg í Porsche 911 Targa.
Það verður að minnsta kosti einn Formúlu 1 ökumaður sem ekur í þolaksturskeppninni í Le Mans í Frakklandi á næsta ári. Það verður Nico Hulkenberg, sem einnig ekur fyrir Formúlu 1 liðið Force India. 

Hulkenberg mun aka einum þriggja Porsche 919 GT3 R Hybrid bílanna í keppninni. Hulkenberg er fyrsti Formúlu 1 ökumaðurinn sem einnig ekur í Le Mans síðan Sebastian Burdais gerði það árið 2009.

Hulkenberg hefur lengi verið mikill aðdáandi Porsche bíla og þakkar bæði Porsche og Formúlu 1 liði fyrir þetta einstaka tækifæri að leyfa sér að keppa í hinni spennandi Le Mans keppni á miðju Formúlu 1 keppnistímabili.

Porsche hefur enn ekki látið uppi hvaða tveir aðrir ökumenn munu aka bílnum með Hulkenberg, en ávallt skiptast 3 ökumenn á í þessum 24 klukkutíma þolakstri, sem reynir mjög mikið á alla ökumennina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×