Innlent

Huldumaður krafðist þess að fá að fylla bílinn hjá leitarfólki á Blönduósi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Liðsmenn Blöndu og Húna frá Hvammstangi sem fóru á tveimur bílum til að aðstoða við leitina að Birnu í gær.
Liðsmenn Blöndu og Húna frá Hvammstangi sem fóru á tveimur bílum til að aðstoða við leitina að Birnu í gær. Björgunarfélagið Blanda
Huldumaður af norðvesturlandi tók ekki annað í mál en að greiða fyrir olíuna á björgunarsveitarbíl sem flutti leitarfólk frá Blönduósi á suðvesturhornið á sunnudaginn til að taka þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur. Eins og fram hefur komið komu um 775 sjálfboðaliðar að leitinni um helgina frá fimmtíu slysavarnardeildum um land allt.

Hjálmar Björn Guðmundsson, formaður björgunarfélagsins Blöndu á Blönduósi, átti ekki heimangengt í þetta skiptið en níu manns héldu á tveimur bílum frá Blönduósi og Hvammstanga á sunnudaginn til að aðstoða við leitina.

Frá leitinni í gær.Björgunarfélagið Blanda
Kunnuglegt andlit á Blönduósi

Björgunarsveitirnar fengu styrki og matargjafir af ýmsu formi um helgina og hvöttu margir olíufélögin til að greiða olíu á tæki sem notuð voru við leitina. Nánast allur bílafloti björgunarsveitanna var notaður við leitina auk fjórhjóla.

Þegar liðsmenn Blöndu komu heim um kvöldmatarleytið í gær fóru þeir á bensínstöð N1 á Blönduósi til að fylla bílinn. Dreif þá að mann sem tók ekki annað í mál en að greiða fyrir olíuna á bílinn. 

Frá þessu var greint á Facebook-síðu Blöndu og fjallaði DV um málið fyrr í dag.

Hjálmar Björn segir að sá vilji alls ekki láta nafns síns getið en jánkar aðspurður hvort andlit mannsins sé kunnuglegt. Um fimmtán þúsund krónur kostaði að fylla bílinn.

Hjálmar Björn hefur verið formaður Blöndu í tæpt ár en var áður formaður sveitarinnar í Varmahlíð. Hann er reynslumikill þegar kemur að björgunarsveitarstarfi. Aðspurður hvers vegna svo margir Íslendingar taki þátt í starfi björgunarsveita og sé boðinn og búinn til aðstoðar þegar bjátar á veltir hann hlutunum fyrir sér.

Liðsmenn frá norðvesturlandi, svæði 9, við leitina í gær.Björgunarfélagið Blanda
Góður félagsskapur

„Þetta er að vissu leyti hálfgerð fíkn og adrenalín,“ segir Hjálmar Björn. Félagsskapurinn sé rosalega góður og hann kynnist fólki víða um land, vinskapur myndist.

„Það gefur manni mjög mikið að geta hjálpað og aðstoðað þá sem eru í vanda.“

Hann bendir áhugasömum á að unglingadeildir séu starfandi víða um land þar sem best sé fyrir þá yngri að stíga sín fyrstu skref.

Á Blönduósi sé deildin þó svo fámenn að miðað sé við átján ára aldur.

„Fyrsta skref er að mæta og láta sjá sig.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×