Innlent

Húkkaraballið áfallalaust

Gissur Sigurðsson skrifar
Frá Þjóðhátíð, en hún hófst formlega í gærkvöldi með Húkkaraballinu. Menn gera ráð fyrir 12 til 13 þúsund manns á Þjóðhátíð.
Frá Þjóðhátíð, en hún hófst formlega í gærkvöldi með Húkkaraballinu. Menn gera ráð fyrir 12 til 13 þúsund manns á Þjóðhátíð. ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
Húkkaraballið sem haldið var í í Fiskiðjusundinu í Vestmannaeyjum í gærkvöldi stóð til klukkan hálf fimm í morgun í blíðskaparveðri.

Fjöldi fólks var á ballinu , sem fór ótrúlega vel fram að sögn lögreglu, og gistir engin fangageymslur eftir nóttina, sem þykir tíðindum sæta.

Nokkur smávægileg fíkniefnamál komu til kasta lögreglu, en engin er grunaður um að hafa ætlað að selja fíkniefni. Lögreglan hefur fengið tvo fíkniefnahunda til liðs við sig um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×