Fótbolti

Hugulsamir leikmenn Tyrkja | Pössuðu að krökkunum yrði ekki kalt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Það er fullt hús í Laugardalnum.
Það er fullt hús í Laugardalnum. vísir/ernir
Leikur Íslands og Tyrklands í undankeppni HM 2018 er nýhafinn. Að venju gengu ungir knattspyrnuiðkendur með leikmönnum liðanna inn á völlinn. Það er frekar napurt í Reykjavík í kvöld og krakkarnir voru aðeins klæddir í landsliðsbúning.

Leikmenn tyrkneska brugðust við því með því að fara úr upphitunargöllum sínum og klæða krakkana í þá svo þeim yrði ekki kalt á meðan þeir stóðu og hlustuðu á þjóðsöngva beggja liða. Fallega gert.

Hægt er að fylgjast með leik Íslands og Tyrklands í beinni textalýsingu á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×