Lífið

Hugsaðu út fyrir kassann til að létta þér lífið í eldhúsinu

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Það er gaman en stundum óþarflega tímafrekt að elda.
Það er gaman en stundum óþarflega tímafrekt að elda.
Stundum er gott að hugsa út fyrir kassann til að einfalda sér lífið í eldhúsinu. Vísir hefur tekið saman fjögur ráð sem ekki öllum er kunnugt um sem geta einfaldað líf þeirra sem eru þó kannski liðtækir fyrir í matreiðslu.

Hristu hvítlaukinn

Það getur tekið tíma að hreinsa burt ytra lag hvítlauks til að ná í sundur hvítlauksgeirunum áður en þeir eru notaðir í eldamennskuna. Til að einfalda það má til dæmis smella þeim í krukku, skrúfa lokið á og hrista duglega. Þegar búið er að hrista þá í nokkrar sekúndur byrjar húðin að losna af þeim og fyrr en varir stendur þú eftir með hvítlauksgeira tilbúna til að pressa þá, mauka eða hvað það sem þú ætlar að nota þá í.

Fullkomnir sveppir

Sum eldhústól eru ætluð fyrir eitt en virka skrambi vel fyrir annað líka. Þar á meðal er eggjaskeri. Til að fá sveppi fullkomlega niður sneidda seturðu þá bara, einn í einu, í eggjasskera og áður en þú veist af eru allir sveppirnir fyrir matinn niðursneyddir í nákvæmlega jafn þykkum sneiðum.

Hárnákvæmur tómataskurður

Tómatar geta verið afbragð en það getur verið tímafrekt að skera 20-30 kirsuberjatómata í tvennt. Ráð við því er að setja þá að skurðarbrettið og þrýst létt en örugglega öðru bretti eða disk ofan á, renna svo hnífnum þar í gegn til að sneiða þá alla í tvennt í einu. Þetta getur sparað dágóðan tíma. Sömu aðferð má nota við annað hringlaga grænmeti og ávexti, til að mynda vínber.

Berðu kálhausinn

Ef til stendur að nota kál af kálhaus í matinn er afar einfalt og vænlegt til árangurs að berja honum hreinlega í borðið. Taktu ofan á hausinn og berðu rótinni, eða harða hlutanum, beint ofan á borðplötuna. Við það brotnar hann frá þannig að auðvelt er að kippa harða hlutanum burt. Eftir stendur þú með þann hluta kálhaussins sem þú ætlar að nota í matargerðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×