Skoðun

Hugsaðu jákvætt, það er léttara

Kári Auðar Svansson skrifar
Geðorðin 10

Grein 1

Greinin er fyrsta greinin af tíu í greinaröð jafn margra úrræða og/eða félaga á geðheilbrigðissviðinu á höfuðborgarsvæðinu um Geðorðin 10. Höfundur er greindur með geðklofa.

Margt bölsýnt fólk réttlætir bölsýni sína með eftirfarandi rökum: „Hvernig get ég verið bjartsýn(n) þegar heimurinn er í því ófremdarástandi sem raun ber vitni? Lítið bara í kringum ykkur: styrjaldir, hungursneyðir, fátækt, ofbeldi – úti um allt! Hvernig get ég leyft mér þá léttúð og óábyrgð að vera glaður/glöð í lund þegar veröldin er í slíku volli?“

Við þessu er hægt að tína til þessi mótrök: þinn hugur er þitt einkasvæði. Það hvort þú tileinkar þér jákvæða eða neikvæða hugsun hefur sáralítið um ástand heimsins að segja – en það hefur allt að segja um þína andlegu líðan. Hvorki bjartsýni þín né svartsýni breytir veröldinni að nokkru verulegu marki. Það eina sem um er að tefla í þessari skák er þín andlega velferð og þín geðræna heilsa.

Fólki sem er með yfirdrifna ábyrgðarkennd, og finnst það ekki geta á heilu sér tekið fyrr en það hefur komið heiminum í skaplegt horf, væri hollt að íhuga þetta: mundu að heimurinn plumaði sig ágætlega áður en þú fæddist, og mun pluma sig ágætlega áfram þegar þú ert horfin(n) af jarðneska sviðinu. Eins og málshátturinn segir: „Kirkjugarðarnir eru fullir af ómissandi fólki.“

Og nú kemur stóra bomban: fyrir utan nokkur sjúkleg tilfelli þar sem lyf og vistun á geðdeild eru nauðsynleg þá eru þunglyndi og depurð oftast nær yfirstíganleg að mestu eða öllu leyti með því að temja sér jákvæðni í hugsun. Það er hægt að taka þá meðvituðu ákvörðun að sjá fremur hið góða og fallega í heiminum heldur en hið vonda og ljóta. Athygli okkar mannfólksins er hvort eð er alltaf og óumflýjanlega „selektíf“ – við sjáum veröldina eins og við viljum sjá hana; með þeim gleraugum sem við setjum á okkur. Og úr því svo er, hví þá ekki að setja upp rósrauðu gleraugun og reyna að sjá það besta í öllum manneskjum og öllum kringumstæðum?




Skoðun

Sjá meira


×