Lífið

Hugrakkasta húðflúr fótboltasögunnar?

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Þessi Englendingur er sigurviss gegn Íslendingum í kvöld.
Þessi Englendingur er sigurviss gegn Íslendingum í kvöld. Vísir/Einkasafn
Íslenska landsliðið gæti orðið til þess að skapa ungum Breta ævilanga gremju. Það kemur til vegna þess að maðurinn er ansi borubrattur og sigurviss fyrir hönd enska landsliðsins í fótbolta. Hann er svo sigurviss að hann lét nýverið húðflúra á sig fána Englands með orðunum; „Evrópusigurvegarar 2016“.

BBC sport birti mynd af húðflúrinu á Twitter-vegg sínum með orðunum; „hugrakkasta húðflúrið í fótboltasögunni“.

Við Íslendingar undirbúum að sjálfsögðu aðra lotu í Brexit - og styðjum landsliðið í því að senda Englendinga sömu leið og þeir kusu sjálfir varðandi ESB.  Áfram Ísland!










Fleiri fréttir

Sjá meira


×