Lífið

Hugleikur hrækir í mækinn

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Jólateiti Hits & Tits var haldið á Húrra í gær en það eru karaókíkvöld sem plötusnældurnar Margrét Erla Maack og Ragnheiður Maísól standa að. Þar mátti sjá marga helstu hipstera Reykjavíkur spreyta sig uppi á sviði og þenja raddböndin.

Það var afar kátt á hjalla í teitinu og margir sem tóku lagið. Þegar blaðamann bar að garði var það enginn annar en myndasöguhöfundurinn Hugleikur Dagsson sem tók sviðið.

Hann rappaði og söng hið sígilda rapplag Lodi Dodi með Snoop Dogg en Hugleikur hefur lengi verið mikill rappaðdáandi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×