Enski boltinn

Hughes: Erfið staða hjá Alan

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Mark Hughes, stjóri Stoke, segir að það sé ekki auðvelt að vera í þeirri stöðu sem Alan Pardew er í hjá Newcastle.

Stoke hafði betur í viðureign liðanna í kvöld, 1-0, og Newcastle er í næstneðsta sæti með þrjú stig að loknum sex umferðum. Liðið er enn að bíða eftir fyrsta sigrinum á nýju tímabili.

„Ég óska Alan Pardew alls hins besta. Þetta er ekki auðvelt,“ sagði Hughes við fjölmiðla eftir leikinn í kvöld.

„Ég hef verið í þessari stöðu. Það eina sem maður getur gert er að halda áfram og hann mun ásamt sínu starfsliði gera allt sem þeir geta til að snúa gengi liðsins við.“

„Leikmenn spiluðu vel fyrir hann í kvöld og það mun hvetja hann áfram í baráttunni,“ bætti Hughes við.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×