Huga þarf að færum leiðum

Fréttablaðið Fastir pennar 06. febrúar 2012 06:00
Óli Kristján Ármannsson.
Óli Kristján Ármannsson.
Óli Kristján Ármannsson skrifar:
Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hér sætt sig við að verðtryggja íbúðarlán. Eiginlega er alveg sama hvaða óáran gengur yfir í heiminum eða hér heima, skuldir almennings hækka.

Því til viðbótar er í raun magnað að hér sé hægt að keyra í gegn hækkanir á neyslusköttum sem vitað er að komi til með að skila sér í verðbólguvísitölu og þar með aukinni greiðslubyrði lána. Kerfið bítur í skottið á sér og almenningi blæðir.

Það er ekki að ástæðulausu sem Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, kallar eftir ábyrgri efnahagsstjórn í viðtali í Fréttablaðinu fyrir helgi, enda hlýtur slagurinn við verðbólgunni að vera einhver sá mikilvægasti til þess að bæta kjör fólks í landinu. Neytendasamtökin vilja efnahagsumhverfi þar sem verðtryggingar gerist ekki þörf. Hann segir reynslu liðinna áratuga þó ef til vill ekki til þess fallna að ýta undir bjartsýni í þeim efnum. „Maður hlýtur hins vegar að gera kröfu til þess að þeir sem stýra þjóðarskútunni líti yfir farinn veg og læri af því sem farið hefur aflaga," segir Jóhannes.

Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor reifaði í grein í efnahagsritinu Vísbendingu í vikunni leiðir til þess að beisla verðbólguna með því að draga úr gjaldeyrissveiflum, en þær eru helsta ástæða og drifkraftur verðbólgunnar. Kerfi með föstu gengi segir hann að myndi framkalla stöðugra verðlag og gera afnám verðtryggingar mögulega. Tvær leiðir eru færar. Annaðhvort er það fastgengi með þátttöku í evrópska myntsamstarfinu eða fljótandi gengi með svokölluðum Tobin-skatti á gjaldeyrisviðskipti.

Slíkur skattur myndi draga úr gengissveiflum og gera út af við spákaupmennsku á gjaldeyrismarkaði. Í dæmi Gylfa er skatturinn hins vegar að minnsta kosti tífaldur á við það sem rætt er um í öðrum löndum.

Með Tobin-skattinum kemur bara á enn einum stað til viðbótar fram kostnaðurinn við að halda hér við krónunni, svona til viðbótar við umtalsvert hærri vexti en gengur og gerist í nágrannalöndum okkar.
Hætt er við því að þótt slíkur skattur myndi ekki endilega trufla fjármögnun stórframkvæmda á borð við virkjanir þá hækkar þröskuldurinn sem smærri fjárfestar kunna að setja fyrir sig, auk þess sem þarna eru vitanlega komnar álögur á þá sem sækja þurfa sér gjaldeyri til ferðalaga, netverslunar og fleiri hluta. Og ekki þarf að hugsa sig lengi um til þess að geta sér til um hvert aukinn kostnaður fyrirtækja af gjaldeyrisviðskipum fer, nefnilega út í vöruverðið. Niðurstaðan er því sú sama, á endanum borgar almenningur brúsann.

Væntanlega verður þó heildarútkoman skárri fyrir allan almenning með Tobin-sköttum og tillagan fagnaðarefni í viðleitni til að koma hér á ábyrgari efnahagsstjórn, líkt og kallað er eftir. Í framhaldinu má svo vega og meta samanburðinn við evrusamstarfið.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Huga þarf að færum leiðum