Viðskipti innlent

HS Orka kaupir hlut í Vesturverki

Stefán Árni Pálsson skrifar
Með samningnum gerist HS Orka meirihlutaeigandi í Vesturverki.
Með samningnum gerist HS Orka meirihlutaeigandi í Vesturverki. mynd/aðsend
HS Orka hefur keypt hlut í orkufyrirtækinu Vesturverki sem vinnur að virkjun Hvalár í Ófeigsfirði á Ströndum en þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Orku.

Með samningnum gerist HS Orka meirihlutaeigandi í Vesturverki. Samningurinn gerir Vesturverki kleift að vinna áfram að rannsóknum og þróun virkjunarinnar í Hvalá.

Hvalárvirkjun er í nýtingarflokki rammaáætlunar ríkisstjórnarinnar um nýtingu orkuauðlinda Íslands sem og á aðalskipulagi Árneshrepps. Áætluð stærð Hvalárvirkjunar er um 50 MW og orkugeta upp á 320 GWh á ári.

Með tengingu til Ísafjarðar er Hvalárvirkjun talin sá virkjunarkostur á Vestfjörðum sem tryggir orkuöryggi Vestfirðinga hvað best.

„Samningurinn við HS Orku gerir okkur kleift að halda áfram rannsóknum og þróun Hvalárvirkjunar. Virkjunin mun hafa víðtæk og verulega jákvæð áhrif á atvinnulíf á Vestfjörðum,“ segir Gunnar Gaukur Magnússon, framkvæmdastjóri Vesturverks.

Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, tekur í sama streng. „Orkuöryggi á Vestfjörðum hefur verið eitt helsta baráttumál íbúa þar um langt skeið enda hafa orkumál staðið atvinnulífinu fyrir þrifum. Við hjá HS Orku þekkjum það af eigin reynslu frá Suðurnesjum hvað orkuöryggi skiptir miklu máli og við finnum fyrir miklum stuðningi íbúa og sveitarfélaga á Vestfjörðum varðandi framgang verkefnisins.“

HS Orka er rótgróið orkufyrirtæki og fagnar 40 ára afmæli á næstunni. Fyrirtækið á og rekur tvær jarðvarmavirkjanir; á Reykjanesi og í Svartsengi. Orkuverin þar hafa leitt af sér aðra fjölþætta starfsemi og nýsköpun; svo sem Bláa lónið, snyrtivöruframleiðslu, fiskeldi og svo mætti lengi telja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×