Skoðun

Hryðjuverkamaður eða glæpamaður!

Bára Friðriksdóttir skrifar
Það er samúð með Dönum og Frökkum sem fyllir hugann um þessar mundir.

Við horfum hljóð á hvernig hryðjuverk hafa verið að ryðja sér til rúms í heiminum frá aldamótum. Friðsamleg andmælin sem heyrðust í Noregi, þá Frakklandi og nú Danmörku eru gagnleg. Það sýnir allt annað en ofbeldi, það sýnir: „Je suis Charlie“, „Ég er blaðið Charlie og tjáningarfrelsið“, „Ég stend með Dönum og grunni dansks samfélags“, „Ég stend við hlið bróður og systur sem kennir til undan ofbeldi heimsins“. Þetta er svolítið svona eins og að rétta hina kinnina. Það er virðing í því og styrkur.

Hugsum hlutina upp á nýtt

Við stöndum frammi fyrir þessum skelfilegu atburðum og reynum að fóta okkur í því sem er að gerast. Það hefur verið talað um hryðjuverk og hefur það nánast alfarið verið tengt við múslíma. Það hefur komið af stað fordómum svo að múslímar upplifa t.d. strangt og tortryggið flugvallaeftirlit, fá ekki sama viðhorf í búðinni, eiga minni von um vinnu á Vesturlöndum o.s.frv. Sem betur fer er að koma breyting í orðræðuna og langar mig að stíga inn í hana. Það er hvorki gagnlegt né sanngjarnt að tengja hryðjuverkamann við átrúnað eða ríki. Hryðjuverkamaður er ýktur glæpamaður og ekkert annað. Margfaldur glæpamaður sem fremur kaldrifjuð morð til að skaða sem flesta. Hann skaðar líka sína eigin trúbræður og systur því (trúin) menningarsamfélagið býður hnekki út af framkomu hans.

Þetta snýst ekki um að vera múslími eða vestrænn, þetta eru glæpamenn sem berjast fyrir ákveðinn málstað. Helle Thorning-Schmidt orðaði þetta vel er hún sagði eftir árásirnar í Danmörku: „Þetta er barátta milli einstaklingsfrelsis og myrkrar hugmyndafræði.“

Munur á Breivík og hryðjuverkamanni?

Það má horfa á Breivík út frá svipaðri hugsun. Nasísk hugmyndafræði hans ætlaði að koma á nýju jafnvægi með því að ryðja annarri hugmyndafræði út af borðinu. Alveg skelfilegt en tökum eftir; hann var kallaður glæpamaður en ekki hryðjuverkamaður. Var það af því hann kom frá landi með kristin grunngildi? Í mínum huga er Breivík ekki kristinn og múslímarnir sem framið hafa ódæðin síðustu misseri eru heldur ekki múslímar, svo langt ganga þessir einstaklingar frá grunnhugmyndum átrúnaðar. Þetta eru reiðir og illskeyttir glæpamenn. Síðasta dæmið sannar það þegar ótíndur glæpamaður tók hvatningu frá öðrum glæpamönnum og myrti fólk í tvígang í Kaupmannahöfn til að taka undir starfsaðferðir annarra glæpamanna sem hvatt hafa fólk í öðrum löndum til að fremja hryðjuverk í sínum heimahögum. Þetta eru glæpaverk og þau hafa ekkert með trú að gera. Ef Íslendingur brýst inn í hús náunga síns, þá eru ekki allir Íslendingar innbrotsþjófar. Þó að einn sem játar trú á Allah fremji hrottalegt morð þá eru ekki allir múslímar morðingjar. Nefnum hlutina sínum réttu nöfnum, hér eru stórglæpamenn á ferð sem brjóta lög Guðs og allra manna.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×