Hryðjuverkaárás á Glasgow flugvelli 30. júní 2007 18:31
Logandi bifreið var ekið inn í aðal flugstöðina í Glasgow í dag. Töluverðar skemmdir urðu og einhver slys á fólki. Hryðjuverk segja bresk yfirvöld. Ökumaður bílsins og farþegi hafa verið handteknir. Frásagnir vitna af atburðinum eru misvísandi en vitað er að tveir menn voru í Cheeroke jeppabifreið sem ekið var á miklum hraða inn í flugstöðvarbygginguna. Vitni segja að logað hafi undir bifreiðinni þar sem henni var ekið á glerhurð og síðan hafi logarnir læst sig í henni allri. Tveir menn af asískum ættum skriðu út úr henni, og að sögn vitna logaði í öðrum manninum. Til átaka mun hafa komið milli þeirra, lögreglumanna og farþega. Báðir voru þeir handteknir. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Engar fréttir hafa borist af alvarlegum slysum á fólki. Flugvöllurinn er sá sjötti stærsti á Bretlandseyjum en þar fara nærri níu milljón farþegar um á ári. Þangað flýgur Icelandir og er ferð fyrirhuguð í fyrramálið. Vel á þriðja hundrað flugvélar fara þar um völlinn á degi hverjum og flogið þaðan til níutíu áfangastaða. Völlurinn var þegar rýmdur og öllu flugi til og frá honum aflýst. Frá fyrstu mínútu benti allt til þess að um hryðjuverkaárás væri að ræða og síðdegis staðfestu heimildarmenn við Sky-fréttastöðina að bresk yfirvöld litu svo á. Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, stýriði fundi í öryggisráði ríkisstjórnarinnar síðdegis og eftir hann var ákveðið að herða öryggisgæslu á flugvöllum á Bretlandseyjum. Bandaríkjamenn hafa gert slíkt hið sama á flugvöllum þar í landi. Mikil spenna hefur skapast á Bretlandseyjum síðan í gær. Þá var komið í veg fyrir blóðbað þegar tvær sprengjur fundust í tveimur Benz bifreiðum í miðborg Lundúna og þær gerðar óvirkar. Ekki er vitað hvort árásin í dag tengist atburðunum í gær. Öryggisgæsla var mikil í borginni í dag þegar árleg gleðiganga samkynhneigðra var haldin. Ekki verður hún minni á Wembley leikvanginum á morgun þar sen verða minningartónleikar um Díönu prinsessu. Þess fyrir utan beinast augu margra íþróttaunnenda að Wimbledon tennismótinu sem stendur nú sem hæst.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira