Bíó og sjónvarp

Hrútar tilnefndir til kvikmyndaverðlauna Evrópusambandsins

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Grímur Hákonarson ásamt aðalleikurunum Sigurði Sigurjónssyni og Theódóri Júlíussyni.
Grímur Hákonarson ásamt aðalleikurunum Sigurði Sigurjónssyni og Theódóri Júlíussyni. mynd/brynjar snær
Hrútar, kvikmynd Gríms Hákonarsonar, er ein tíu mynda sem tilnefnd er til LUX kvikmyndaverðlaunanna í ár. Þetta er í fyrsta skipti sem íslensk kvikmynd er tilnefnd til verðlaunanna.

Tilkynnt var um tilnefndingar á hátíðinni Karlovy Vary í Tékkalndi í gær. Þrjár af myndunum tíu komast áfram í undanúrslit og verða sýndar á Feneyjahátíðinni auk þess að vera þýddar og textaðar á öll 24 opinber tungumál Evrópusambandsins og sýnd í öllum aðildarríkjum. Tilkynnt verður um sigurvegara í lok árs.

„Ég verð að viðurkenna að ég vissi ekki um þessi verðlaun fyrr en ég fékk sendar upplýsingar um að Hrútar væru tilnefndir og ég átta mig betur á því núna hvað er í húfi og hversu merkilegt þetta er,“ segir Grímar Jónsson, framleiðandi myndarinnar. „Það eru allir að óska okkur Grími til hamingju hérna úti og manni líður hálfpartinn eins og maður hafi verið að vinna eitthvað bara við það eitt að vera tilnefndur. Það væri magnað að komast áfram í þriggja mynda úrslit og það verður ljóst eftir tvær vikur.“

Tilnefningin er enn ein rósin í hnappagöt Hrúta en fyrr á árinu sigraði hún í flokknum Un Certain Regard á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi. 


Tengdar fréttir

Hrútar seld til Bandaríkjanna

Gengið hefur verið frá sölu á verðlaunamyndinni Hrútum Bandaríkjanna. Það var framleiðslu- og dreifingarfyrirtækið Cohen Media Group sem keypti dreifingarréttinn vestanhafs en gengið var frá samningum í gær.

Kindurnar með hreinum ólíkindum

Hrútar, kvikmynd Gríms Hákonarsonar, umturnaði Bárðardal á meðan á tökum stóð en bændur og kvikmyndagerðarmenn lögðust á eitt til að gera myndina að veruleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×