Sport

Hrinti eiganda Bears

McCaskey, til hægri, er hér ásamt Mike Ditka, fyrrum þjálfara Bears.
McCaskey, til hægri, er hér ásamt Mike Ditka, fyrrum þjálfara Bears. vísir/getty
Afar sérkennilega uppákoma varð á leik Chicago Bears og New Orleans Saints í NFL-deildinni á mánudag. Leikurinn fór fram á heimavelli Bears, Soldier Field.

Þá tóku nokkrir stuðningsmenn Saints upp á því að hertaka sæti eiganda Bears, George McCaskey. Fór það framhjá öryggisvörðum vallarins.

Er McCaskey mætti á svæðið bað hann mennina kurteislegaa um að standa upp og fara í þau sæti sem þeir hefðu keypt á vellinum.

Mennirnir neituðu að verða við þeirri eðlilegu bón. Er McCaskey gekk áleiðis til öryggisvarða að ná í aðstoð hljóp einn af Saints-mönnunum á eftir honum og ýtti svo fast á bak McCaskey að hann féll til jarðar.

Einn stuðningsmaður Bears sá uppákomuna og kom eiganda sínum til bjargar með því að tækla Saints-manninn með látum í jörðina.

Saints-stuðningsmanninum var vísað af vellinum og einnig hefur hann verið kærður fyrir hegðun sína.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×