Innlent

Hringveginum lokað við Hvalnesskriður

Atli Ísleifsson skrifar
Þjóðvegur 1. Myndin er ekki tekin við Hvalnesskriður.
Þjóðvegur 1. Myndin er ekki tekin við Hvalnesskriður. Vísir/gva
Hringveginum hefur verið lokað við Hvalnes og á Hlíðarsandi, austan við Höfn í Hornafirði, vegna aftakaveðurs.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að rúður hafi fokið úr bílum sem þar hafa átt leið um.

Vegurinn verður lokaður þar til veður skánar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×