Innlent

Hringtenging ljósleiðara á Vestfjörðum sett á dagskrá

Sveinn Arnarsson skrifar
Lilja Rafney Magnúsdóttir Spurði ráðherra hvað liði hringtengingu ljósleiðara á Vestfjörðum.
Lilja Rafney Magnúsdóttir Spurði ráðherra hvað liði hringtengingu ljósleiðara á Vestfjörðum. Fréttablaðið/Daníel
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra sagði frá því í sérstakri umræðu um fjarskiptamál á landsbyggðunum, að hringtengja ætti Vestfirði á næstu árum til þess að öryggi fjarskipta landshlutans væri tryggt. Hún vill fá fleiri fyrirtæki en hið opinbera til að fjármagna verkið.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, var frummælandi umræðunnar á þingi. Sagði hún að þann 26. ágúst síðastliðinn, þegar gagnaflutningar og símasamband fór út á Vestfjörðum, hefði skapast mjög hættulegt og ótryggt ástand. Ekki var hægt að hafa samband við viðbragðsaðila og sýndi þetta atvik fram á mikinn veikleika í flutningskerfinu á Vestfjörðum. „Ekkert varasamband var um svæðið og það vakti athygli hversu langan tíma lagfæringin tók,“ sagði Lilja Rafney.

Hún spurði að lokum innanríkisráðherra hvernig hann hygðist bregðast við. „Hvernig hyggst hæstvirtur ráðherra bregðast við alvarlegu ástandi sem varð á Vestfjörðum í ágúst síðastliðnum og hver er ábyrgð viðkomandi fyrirtækja?“

Hanna Birna Kristjánsdóttir, ráðherra samgöngumála, telur öryggi í fjarskiptum á Vestfjörðum ekki vera nægilega sterkt. Hún hefur þess vegna lagt til að lagning ljósleiðara frá Súðavík til Brúar í Hrútafirði verði styrkt en með því næst hringtenging um Vestfirði sem eykur öryggi í fjarskiptum á Vestfjörðum. Hins vegar vildi ráðherra ekki svara því til hvenær hringtenging kæmist á og taldi óábyrgt af sér að nefna tímasetningar í þeim efnum. Til stæði að nota um 100 milljónir af fjármagni fjarskiptasjóðs til verksins.

Þær eitt hundrað milljónir sem fjarskiptasjóður leggur í verkið eru um þriðjungur af heildarfjármögnuninni. Ráðherra vill að fleiri leggi fé í verkið en ríkið þar sem þeir hagnast af verkinu.

Í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2014-2017 er ítarlega gerð grein fyrir stefnu stjórnvalda í uppbyggingu fjarskipta á landsbyggðunum. Eitt af leiðarljósum fjarskiptaáætlunarinnar er áhersla á atvinnuuppbyggingu, bætt lífsgæði og jákvæða byggðaþróun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×