Innlent

Hringdi 82 símtöl í 112

Gissur Sigurðsson skrifar
vísir/stefán
Tvær konur voru handteknar í nótt eftir margítrekað ónæði við Neyðarlínuna, 112. Annars vegar var rúmlega sjötug kona handtekin á heimili hennar í austurborginni eftir að hafa hringt 82 símtöl í Neyðarlínuna frá miðnætti, þótt ekkert amaði að.

Klukkustund síðar var kona um þrítugt handtekin á heimili hennar í vesturborginni og óskað eftir aðstoð, sem enginn fótur var fyrir. Í báðum tilvikum hafði lögregla farið heim til þeirra og reynt að fá þær með góðu ofan af þessu, en án árangurs.

Báðar konurnar voru mjög ölvaðar, að sögn lögreglu, og gista nú fangageymslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×