Lífið

Hresst og skemmtilegt lokapartí Reykjavík Dance Festival og Lókal

Þekktir fyrir hressa sviðsframkomu Hljómsveitarmeðlimir Grísalappalísu lögðu sig fram að vanda.
Þekktir fyrir hressa sviðsframkomu Hljómsveitarmeðlimir Grísalappalísu lögðu sig fram að vanda.
Sameiginlegt lokapartý fyrir dans - og leiklistarhátíðarnar Reykjavík Dance Festival og Lókal var haldið á Dansverkstæðinu um helgina.

Eins og sjá má myndunum var þar mikið fjör og gestir skemmtu sér mjög vel.

Hljómsveitin Grísalappalísa spilaði svo fyrir gesti og síðar DJ Good Moon Dear, en sá hélt stuðinu gangandi langt fram eftir nóttu.

Myndirnar tók Jeaneen Lund.

Dansarinn Ásrún Magnúsdóttir, Sigurður Möller og Katrín Gunnarsdóttir mættu á Dansverkstæðið.
Leikarinn Hjörtur Jóhann Jónsson, höfundurinn Björn Leó Brynjarsson, dansarinn og GIF-drottnignin Berglind Pétursdóttir og Steinþór Helgi Arnsteinsson hjá CCP létu sig ekki vanta.
Gríðarleg stemming var á Dansverkstæðinu.
Systurnar Rósa og Erna Ómarsdætur, Inga Huld Hákonardóttir og vinkona þeirra, Liz.
Gestir dönsuðu úr sér allt vit, eins og þeirra er von og vísa.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×