Leikjavísir

Hressandi en ekki gallalaus leikur fyrir marga að spila í einu

Tinni Sveinsson skrifar
Fjölbreyttur Mario Party er smekkfullur af smáleikjum
Fjölbreyttur Mario Party er smekkfullur af smáleikjum VÍSIR/NINTENDO
Mario Party 10 er nýjasti leikurinn í samnefndri röð frá Nintendo og er gerður fyrir Wii U-leikjatölvuna.

Mario Party er hugsaður fyrir marga að spila saman í einu. Borðin eru sett upp eins og borðspil og spilarar kasta sýndarteningi til að komast áfram og reyna að safna sér sem flestum stjörnum í mismunandi smáleikjum.

Hægt er að spila hann á nokkra vegu en leikurinn kynnir meðal annars til sögunnar Bowser Mode, þar sem einn spilaranna tekur sér GamePad-stýringuna í hönd og spilar Bowser á móti hinum. Virkilega skemmtileg viðbót.

Þá styður leikurinn einnig Amiibo-fígúrurnar. Hægt að spila með þeim og á hver fígúra sér borð sem er hannað sérstaklega fyrir hana.

Leikurinn er fjölbreyttur og smekkfullur af smáleikjum sem gaman er að spila. Það er hins vegar meinlegur galli á honum að allt spilið er keyrt áfram á teningaköstum. Þetta gerir það að verkum að ekki er hægt að auka reglulega við árangurinn eftir því sem færnin eykst. Þetta getur verið pirrandi.

Mario Party er aftur á móti litríkur og uppfullur af hressandi húmor og er skemmtilegt að spila hann með vinum eða fjölskyldunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×