Lífið

Hrellti Keanu Reeves með tali um skapahár

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Whoopi Goldberg fór á kostum í viðtalinu og viðbrögð Keanu Reeves voru eftir því.
Whoopi Goldberg fór á kostum í viðtalinu og viðbrögð Keanu Reeves voru eftir því. Vísir/skjáskot
Leikkonan Whoopi Goldberg mætti á dögunum í heimsókn til breska spjallþáttastjórnandans Graham Norton.

Þar fór hún algjörlega á kostum þegar talið barst að uppistandi hennar í London þessa dagana, þar sem hún talar um upplifun sína af því að eldast.

Ásamt henni voru þeir Keanu Reeves og Jamie Dornan einnig gestir þáttarins og þegar talið barst að skapahárum leikkonunnar fór Reeves að hætta að lítast á blikuna, eins og sjá má í þessu drepfyndna myndbandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×