Glamour

Hrekkjavöku hugmyndir frá tískupöllunum

Ritstjórn skrifar
Nú fer að líða að hrekkjavökunni og því ekki seinna vænna en að byrja að spá í búning. Það er ekki allra að vera vampýra og mexíkönsku hauskúpurnar eru orðnar dálítið þreyttar.

Fyrir þá sem vantar nýjar hugmyndir þá tók Glamour saman nokkrar hressilegar farðanir af tískupöllunum fyrir veturinn og næsta sumar. 

Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.

Rauður varalitur og smá attitjúd er allt sem þarf í þennan. Gareth Pugh
Maskari á neðri augnhár, rauðar varir og kinnalitur fyrir einfaldan dúkkubúning í anda Blugirl.
Kannski ekki þægilegasti búningurinn, en að teikna andlit á nælonsokk er einföld lausn. Vivienne Westwood
Allt er hægt með augnháralími, perlum, tjulli og mikilli þolinmæði. Givenchy.
Marie Antonette lúkk hjá Alexander McQueen
Fáðu útrás fyrir grafíska listamanninn í þér í anda Yamamoto
Álpappír, augnháralím og metallitur er allt sem þarf í búning í anda Rick Owens





×