Skoðun

Hreinsun sundlaugarvatns og heilsuáhrif

Magnús Orri Grímsson skrifar
Óson (O3) og vetnisperoxíð (H2O2) eru oxidantar sem fyrirfinnast í náttúrunni. Til að óson geti myndast þarf að vera til staðar súrefni (O2) og útfjólublá geislun, einnig getur óson myndast við jónun súrefnis við aðstæður eins og í eldingum. Þar sem óson og raki eru til staðar getur myndast örlítið magn af vetnisperoxíði.

Oxidantar eins og óson og vetnisperoxíð eru öflugir til að eyða mengun, drepa sýkla og aðra óværu. Í andrúmsloftinu er um 20% súrefni og sólin sér okkur fyrir útfjólublárri geislun, þannig að stöðug myndun ósons á sér stað í andrúmsloftinu.

Í sundlaugum er yfirleitt notað hýpóklórít, natríum hýpóklórít eða kalsíum hýpóklórít við sótthreinsun sundlaugarvatns en við oxun þeirra geta myndast óæskileg klórsambönd sem geta skaðað heilsu okkar.

Eitt þessara klórsambanda er klóramín (chloramine). Þegar við finnum klórlykt í sundi er það lyktin af klóramíni. Klóramín getur verið ertandi fyrir augu og húð. Klóramín er einnig talið orsök hárrar tíðni astma hjá sundfólki.

Annað þessara klórsambanda er klóróform (chloroform). Klóróform getur skaðað lifur, nýru og miðtaugakerfi. The International Agency for Research on Cancer hefur flokkað klóróform sem hugsanlegan krabbameinsvald.

Klóramín og klóróform myndast í gegnum klórefnahvörf við lífræn efni eins og þvag, svita, hár og skinn. Með síaukinni sölu lyfjaplástra viðurkennist upptaka í gegnum húð og ekkert annað á við um böð í klórbættu vatni. Sundfólk upptekur klóramín og klóróform að mestu leyti í gegnum húð.

Útfjólublá geislun sólar virkar sem hvati efnahvarfs þar sem klóróform og súrefni eru með í myndun eitruðu gastegundarinnar phosgene. Phosgene var notað sem efnavopn í fyrri heimsstyrjöldinni.

Aðferð náttúrunnar

Þess skal einnig getið að halogenarnir flúor, klór, bróm og joð hafa oxunareiginleika. En joð er nauðsynlegt snefilefni fyrir lífverur, það fyrirfinnst helst í skjaldkirtli, brjóstum kvenna og blöðruhálskirtli karla. Sífellt sterkari tenging er gerð við joðskort og krabbamein í ofantöldum líffærum. Joð ver okkur gegn sýkingum og er mikilvægt við hormónaframleiðslu. Joðskortur getur valdið stækkun skjaldkirtils (goiter), greindarskorti og vansköpun (cretinism), síþreytu, þunglyndi, yfirþyngd og lágum líkamshita.

Í líkamanum eru ákveðnir joðmóttakarar (receptorar) sem halda joði í líkamanum en léttari halogenar, þ.e. flúor, klór og bróm, geta losað joð úr sínum móttökum og tekið þeirra stað. Með öðrum orðum getur það leitt til joðskorts að nota flúortannkrem og flúorskol, drekka flúor- og/eða klórbætta drykki og vera í klórbættu vatni (sundlaugarvatn). Íslendingar hafa ekki bætt flúor og/eða klór í drykkjarvatn, en það hafa margar aðrar þjóðir gert.

Höldum ásýnd Íslands sem fyrirmynd um hreinleika og tærleika, bætum heilsu sundfólks og hættum að nota klór til sótthreinsunar sundlaugarvatns. Notum þess í stað aðferð náttúrunnar og hreinsum sundlaugarvatnið með ósoni, útfjólubláu ljósi og vetnisperoxíði.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×